Hasselback kartöflur
Frábært meðlæti, sérstaklega með helgarmatnum eða í veislurnar.

Frábært meðlæti, sérstaklega með helgarmatnum eða í veislurnar.

Hitið ofninn í 200°C, notið undir- og yfirhita.
Skolið kartöflurnar og þurrkið.
Notið beitan hníf og skerið margar þunnar raufar ofan í kartöfluna. Hafið um 3–4 mm á milli skurða. Passið að skera ekki alveg niður heldur látið neðsta lagið halda kartöflunni saman. Nota má sérstakt Hasselback-bretti eða klemma kartöflurnar á milli tveggja trésleifa til að tryggja að ekki sé skorið gegnum kartöfluna.

Raðið kartöflunum í hæfilega stórt eldfast mót eða á bökunarplötu með bökunarpappír.
Takið utan af hvítlauk og saxið eða pressið. Blandið saman í skál hvítlauk, olíu, salti og oreganói. Pennslið olíublöndunni vel inn í rifurnar á kartöflunum.
Bakið kartöflurnar í ofninum í 50-60 mínútur ef kartöflurnar eru stórar. Minni kartöflur þurfa örlítið styttri tíma.
Eftir 30 mínútur er gott að pensla þær með smá olíu en má einnig sleppa.
Kartöflurnar eru tilbúnar þegar þær eru gullinbrúnar og mjúkar að inni, oftast að 50-60 mínútum liðnum.
Til að gefa kartöflunum hátíðlegan blæ má strá ferskum kryddjurtum eins og steinselju eða timjan yfir þær rétt fyrir framreiðslu.
Kartöflurnar passa einstaklega vel með kjúklingi, fiski eða öðrum hátíðlegum aðalréttum.