Graskerssúpa

graenmetis
vegan
kjotlaust

Graskerssúpa sem hentar sérstaklega vel á köldum dögum, borin fram með ljúffengum brauðteningum úr afgangs rúgbrauði.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Hnetur og afurðir úr þeim,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Graskerssúpa

Aðferð

https://fuldkorn.dk/

    Súpa

  1. Skrælið og fræhreinsið graskerið og skerið í teninga. Takið utan af lauk, hvítlauk og engifer og skolið chillí. Saxið lauk, hvítlauk og chillí smátt og rífið engifer með rifjárni.

  2. Hitið olíu (ríflega helming af olíunni) í stórum potti og steikið lauk, hvítlauk, chillí, engifer og broddkúmen þar til það verður ilmandi.

  3. Bætið graskeri, grænmetiskrafti og vatni út í pottinn. Látið sjóða í um það bil 20 mínútur eða þar til graskerið er meyrt. 

  4. Notið töfrasprota eða matvinnsluvél til að mauka innihaldið þar til allt hefur blandast vel saman. Smakkið til með örlitlu salti, pipar, broddkúmeni eða öðrum kryddum. 

  5. Toppur

  6. Skerið rúgbrauðið í litla teninga og veltið upp úr restinni af olíunni og smá salti.

  7. Ristið brauðteningana á pönnu eða í ofni við 180°C í um 10 mínútur. Leyfið teningunum síðan að kólna alveg.

  8. Blandið ristuðu teningunum saman við kókosflögurnar.

  9. Skolið og saxið kóríander niður og skerið límónu í báta.

  10. Toppið súpuna með blöndu af rúgbrauðsteningum og kókosflögum, fersku kóríander, smá límónusafa og lítilli skeið af hreinu skyri.

Næringargildi
Fuldkornspartnerskabet

Innihald

2 skammtar
500 
g
Grasker (hokkaido- eða butternut grasker)
0.5 
stk
Laukur
rif
Hvítlaukur
msk
Engifer (ferskt)
0.5 
stk
Chillí (ferskt eða þurrkað)
0.75 
msk
Olía
0.5 
tsk
Broddkúmen
stk
Kraftur (t.d. grænmetisteningur)
dl
Vatn
0.25 
tsk
Salt
1.5 
sneið
Rúgbrauð (danskt grófkorna)
msk
Kókosflögur (valkvætt, má nota graskersfræ eða hnetur)
g
Kóríander (ferskt - valkvætt)
0.5 
stk
Límóna
msk
Skyr (hreint eða t.d. hrein jógúrt)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti