Grænkálssalat
Ljúffengt grænkálssalat bæði gott sem máltíð og meðlæti.

Ljúffengt grænkálssalat bæði gott sem máltíð og meðlæti.

Sjóðið byggið samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu eða þar til það er meyrt en enn með smá biti. Skolið það upp úr köldu vatni, sigtið vatnið frá og setjið í skál ásamt smá olíu (um 1/3 af olíunni)
Fjarlægið stilkana úr grænkálinu, skolið blöðin vel og saxið fínt. Setjið smá olíu eða appelsínusafa yfir og nuddið kálið létt í um 30 sekúndur til að mýkja það.
Takið utan af rauðlauknum og saxið hann fínt. Blandið rauðlauk, byggi og grænkáli saman í skál.
Skolið eplið og takið hýðið utan af appelsínunni. Skerið eplið í þunnar sneiðar og appelsínuna í smáa bita. Blandið ávöxtunum saman við salatið.
Kreistið safa úr sítrónu. Blandið saman sítrónusafa, restinni af olíunni, sírópi og smá salti. Hægt er að setja allt saman í krukku með loki og hrista vel eða í litla skál og hræra. Hellið dressingunni yfir salatið og blandið vel.
Saxið möndlurnar og stráið þeim yfir salatið rétt áður en það er borið fram.
Gott er að nudda grænkál með smá vökva svo sem olíu, safa úr appelsínu, límónu eða sítrónu eða jafnvel vatni. Þetta mýkir kálið og þá er auðveldara að tyggja það og áferðin verður öll léttari.
Salatið er frábært meðlæti með kjúklingi og öðru fuglakjöti eða sem vegan kostur jafnvel með sætum kartöflum, baunum eða ofnbökuðu blómkáli.