Gaspacho með vatnsmelónu
Ferskt og bragðmikið gaspacho, tilvalið sem létt máltíð eða sumarlegur forréttur.

Ferskt og bragðmikið gaspacho, tilvalið sem létt máltíð eða sumarlegur forréttur.

Skrælið gúrkuna, takið hýðið af melónunni, skolið tómatana og afhýðið lauk og hvítlauk.
Skerið gúrku, vatnsmelónu, tómata, lauk, hvítlauk og brauð í fremur stóra bita eða teninga og setjið í stóra skál ásamt tómatsafa og vatni. Geymið í ísskáp í um 30 mínútur – þessu skrefi má þó sleppa og halda beint áfram í næsta skref.
Setjið innihaldið úr skálinni í blandara eða matvinnsluvél og blandið í 1–2 mínútur eða þar til blandan hefur náð silkimjúkri áferð. Blöndunartími getur verið mismunandi eftir tækjum.
Smakkið gaspacho-ið til með olíu, límónusafa og salti eftir smekk. Þið getið líka bætt við öðrum kryddum að vild.
Súpan er best ísköld. Kælið hana annaðhvort eftir að hún er maukuð eða notið köld hráefni til að stytta kælitímann.
Athugið að í stað brauðsneiðar má nota grófan brauðrasp. Miðið þá við um 1/2 dl af brauðraspi ef uppskriftin er tveggja skammta.
Gott er að bera gaspacho fram með ristuðu heilkornabrauði. Einnig passar vel að útbúa brauðteninga með hvítlaukskryddi og smá olíu og skreyta súpuna með þeim. Fallegt er að skera tómata, vatnsmelónu, rauðlauk og gúrku í litla teninga og setja yfir súpuna í lokin.