Ferskar vorrúllur
Einfaldar, næringarríkar og bragðgóðar vorrúllur úr hrísgrjónapappír sem er hægt að fylla með allskonar grænmeti, ávöxtum og jafnvel kjöti að eigin vali.

Einfaldar, næringarríkar og bragðgóðar vorrúllur úr hrísgrjónapappír sem er hægt að fylla með allskonar grænmeti, ávöxtum og jafnvel kjöti að eigin vali.

Hitið ofninn í 175°C.
Vefjið tófúið inn í hreint viskastykki og leggið á bretti eða disk. Setjið eitthvað þungt ofan á, til dæmis pott eða bók, og látið standa í 10 til 15 mínútur til að ná sem mestum vökva úr því.
Skerið pressað tófú fyrst þvert í langar ræmur. Skerið svo hverja ræmu í tvennt, þannig að bitarnir verði hæfilega stórir í vorrúllur.
Setjið tófúbitana í grunnan disk og dreypið tamarisósu yfir báðar hliðar. Látið standa þar til ofninn hefur náð réttum hita.
Leggið bökunarpappír á ofnplötu og raðið tófúbitunum á hana. Bakið í miðjum ofni í 30 mínútur og snúið bitunum við um miðbik bökunartímans.
Þegar tofúið er tilbúið setjið bitana í skál og veltið þeim upp úr sataysósunni.
Skolið gulrætur, rauðkál og papriku og skerið í ræmur. Skolið einnig salat, spírur og kóríander og látið vatnið renna vel af.
Setjið vatn í pott og látið suðuna koma upp. Bætið hrísgrjónanúðlum út í og sjóðið samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu.
Setjið smá volgt vatn í djúpan disk. Dýfið einu hrísgrjónablaði í einu ofan í vatnið þannig að það verði alveg umlukið. Látið liggja í um 30 til 40 sekúndur eða þar til blaðið er orðið mjúkt og sveigjanlegt. Takið blaðið upp úr og leggið á hreint bretti.
Raðið fyllingu að eigin vali í miðjuna en passið að setja ekki of mikið því þá verður erfitt að rúlla blaðinu upp. Byrjið á að brjóta neðri hluta blaðsins yfir fyllinguna. Leggið svo hliðarnar yfir þannig að rúllan lokist eins og umslag. Teygið loks efsta hluta blaðsins varlega yfir rúlluna og rúllið þétt saman.

Skerið rúlluna í tvennt með beittum hníf og berið fram með saytasósu, tamarisósu og/eða saltminni sojasósu – tilvalið til að dýfa í.
Í vorrúllurnar má nota alls konar fersk og bragðgóð hráefni, til dæmis gúrku, hvítkál, mangó, kjúkling, ferskt chillí og ferskar kryddjurtir.