Einföld dukkah kryddblanda

vegan
graenmetis
kjotlaust

Dukkah er dásamleg egypsk kryddblanda úr ristuðum hnetum, fræjum og ilmandi kryddi. Hefðbundið er að dýfa brauði fyrst í ólífuolíu og síðan í dukkah en einnig er hægt að toppa hina ýmsu rétti eins og kjúkling, fisk eða grænmetisrétti með kryddblöndunni.

Sesamfræ og afurðir úr þeim,
Hnetur og afurðir úr þeim,
Jarðhnetur og afurðir úr þeim,
Einföld dukkah kryddblanda

Aðferð

  1. Ristið heslihneturnar á þurri pönnu við meðalhita í um 5 mínútur, eða þar til þær ilma og hafa fengið örlítinn lit. Hrærið reglulega í þeim á meðan og takið þær síðan af pönnunni.

  2. Ristið kóríanderfræ og broddkúmenfræ á sömu pönnu í 1–2 mínútur, eða þar til þau byrja að ilma. Ristið sesamfræin sér þar til þau verða örlítið gyllt.

  3. Látið allt kólna í nokkrar mínútur. Setjið næst heslihnetur, kóríanderfræ, broddkúmenfræ, salt og pipar í matvinnsluvél eða hakkara og malið gróft. Gætið þess að vinna blönduna ekki of lengi; hún á að vera gróf en ekki duftkennd.

  4. Blandið ristuðu sesamfræjunum saman við í lokin svo þau haldist heil.

  5. Setjið í krukku með þéttu loki eða annað loftþétt ílát. Geymist í allt að 4 vikur.

Nafnið dukkah er dregið af arabísku og vísar til þess að hráefnin séu mulin og blönduð saman.

Innihald og hlutföll geta verið breytileg. Hefðbundið er að dýfa brauði fyrst í ólífuolíu og síðan í dukkah, en blandan er einnig góð yfir salöt, grænmeti, hummus og baunarétti eða með kjúklingi og fiski.

Þurristun kryddfræja áður en þau eru mulin er hefðbundin aðferð sem dregur fram bæði bragðið og ilm.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

6 skammtar
50 
g
Heslihnetur (eða t.d. möndlur eða pekanhnetur)
msk
Sesamfræ (ljós eða dökk)
msk
Kóríanderfræ (valkvætt)
tsk
Broddkúmenfræ (valkvætt)
0.25 
tsk
Salt
0.1 
tsk
Piparkorn (eða malaður - valkvætt)

Kryddblandan gefur rúmlega 1 dl, sem samsvarar um 6 skömmtum miðað við 1 matskeið (msk) á mann.

Bæta á innkaupalista
Bæta á dagatalið
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti