Einföld ávaxtaskál

vegan
graenmetis
kjotlaust

Ljúffeng og fersk ávaxtaskál sem tekur aðeins nokkrar mínútur að útbúa. Fullkomin blanda af sætu og súru bragði, tilvalin sem morgunmatur, millimál, kvöldsnarl eða eftirréttur.

Einföld ávaxtaskál

Aðferð

  1. Takið utan af banananum og skerið hann í sneiðar. Takið einnig utan af vatnsmelónu, kíví, appelsínu, mangó og ananas og skerið ávextina í hæfilega stóra bita eða teninga.

  2. Skerið granatepli til helminga og takið kjarnana varlega úr yfir skál með vatni til að forðast að safinn spýtist út um allt. Fjarlægið hvíta himnuna sem situr á milli, hún er beisk á bragðið.

  3. Setjið alla ávextina saman í stóra skál og blandið varlega saman þannig að bitarnir haldist heilir.

  4. Berið ávaxtasalatið fram í skálum og stráið fínsaxaðri myntu yfir ef vill. 

Ávaxtaskálar eru sniðugur millibiti eða eftirréttur og góð leið til að nýta þá ávexti sem til eru hverju sinni í girnilega blöndu. Gott er að kreista smá límónu- eða sítrónusafa yfir salatið rétt áður en það er borið fram – það gerir ávextina enn frísklegri.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
stk
Bananar
300 
g
Vatnsmelóna
stk
Kíví
stk
Appelsínur
200 
g
Ananas
stk
Mangó
0.5 
stk
Granatepli (granateplakjarnarnir - valkvætt)
g
Mynta (fersk - valkvætt)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti