Einfalt gulrótarsalat
Ljúffengt og ferskt salat sem hentar vel sem létt máltíð eða meðlæti.

Ljúffengt og ferskt salat sem hentar vel sem létt máltíð eða meðlæti.

Skolið gulræturnar og skerið í þunnar ræmur með grænmetisflysjara. Setjið í skál.
Ristið sesamfræ á þurri pönnu við meðalhita í nokkrar mínútur, þar til þau verða létt gyllt og fara að ilma. Hrærið reglulega svo þau brenni ekki.
Kreistið safann úr sítrónunni og blandið saman við olíu í skál eða krukku. Hellið blöndunni yfir gulræturnar.
Blandið síðan sesamfræjum og pistasíuhnetum saman við og kryddið með salti og pipar eftir smekk.
Toppið salatið með ferskum kryddjurtum eins og kóríander, steinselju eða myntu – ef þær eru til á heimilinu. Skolið jurtirnar áður en þær eru settar yfir.
Í þetta salat má bæta ýmsu við, allt eftir smekk og því sem til er á heimilinu. Gott er að nota grænmeti eins og gúrku, papriku og rauðkál eða bæta við ávöxtum eins og granateplum, rifnu epli, appelsínum eða mangói. Hnetur og fræ fara einnig vel í salatið – til dæmis graskersfræ, sólblómafræ, valhnetur eða möndlur.
Ef þið viljið gera salatið matarmeira, bætið þá við próteingjafa eins og tófu, kjúklingi, linsubaunum eða halloumi osti. Það er líka gaman að leika sér með dressinguna og bæta út í hana hnetusmjöri, tahini, tamarisósu eða misó til að fá dýpra bragð.