Chimichurri

vegan
graenmetis
kjotlaust

Fersk og bragðmikil chimichurri-sósa sem hentar vel með grillmat, steiktu grænmeti og heilkorna brauði. 

Brennisteinsdíoxíð og súlfít,
Braggóð og fersk Chimichurri

Aðferð

  1. Afhýðið og saxið eða pressið hvítlaukinn.

  2. Skolið steinseljuna, þerrið hana og saxið smátt.

  3. Blandið saman í skál olíu, hvítlauk, hvítvínsediki, oreganó, chillíflögum, reyktu paprikudufti og salti.

  4. Hrærið söxuðu steinseljunni saman við.

  5. Látið chimichurri sósuna standa í 10–15 mínútur áður en hún er borin fram svo bragðið nái að taka sig.

Chimichurri sósa passar vel með grilluðu kjöti, fiski, kjúklingi, kartöflum og grænmeti. Hún er einnig góð sem marinering.

Fyrir mildara bragð má minnka hvítlaukinn eða sleppa chiliflögum. Ef fersk steinselja er ekki til má nota blöndu af steinselju og kóríander eða bæta við smá fersku oreganói. 

Geymist í loftþéttu íláti í ísskáp í allt að 4–5 daga.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
0.5 
rif
Hvítlaukur
25 
g
Steinselja
2.5 
msk
Olía (t.d. ólífuolía)
msk
Hvítvínsedik (eða rauðvínsedik)
0.25 
tsk
Oreganó (þurrkað)
0.1 
tsk
Chillíflögur
0.1 
tsk
Reykt paprika (duft)
0.25 
tsk
Salt
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti