Chillí sin carne

vegan
graenmetis
kjotlaust

Chili sin carne er fullkomið dæmi um bragðgóðan og djúsí grænmetisrétt. Réttur sem þú munt elda aftur og aftur.

Chillí sin carne

Aðferð

  1. Afhýðið lauk og hvítlauk og saxið niður. Skolið og saxið niður papriku og gulrót.

  2. Hitið olíu í potti og steikið lauk, papriku og gulrætur í nokkrar mínútur eða þar til grænmetið fer að mýkjast. Bætið svo hvítlauk út í og steikið í 1 mínútu til viðbótar.

  3. Bætið öllu öðru sem er í uppskriftinni nema baunum og hunangi út í pottinn, blandið vel saman og sjóðið í 30 mínútur.

  4. Skolið baunirnar undir köldu vatni og látið vatnið renna vel af. Bætið baununum saman við réttinn ásamt hunangi og leyfið öllu að malla í nokkrar mínútur eða þar til baunirnar eru orðnar heitar í gegn.

Berið réttinn fram með hýðisgrjónum og ef vill guacamole. Kryddið réttinn eftir smekk með t.d. chilli, broddkúmeni eða reyktu paprikudufti. Það gerir réttinn enn betri að strá smá fersku kóríander yfir og kreista límónu á toppinn.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
stk
Laukur
rif
Hvítlaukur
stk
Paprika
stk
Gulrætur (í stærra lagi)
msk
Olía
400 
ml
Tómatpassata (má vera meira)
msk
Tómatpúrra
0.5 
tsk
Reykt paprika (duft)
0.5 
stk
Chillí (ferskur - má einnig nota duft eða flögur)
0.5 
tsk
Pipar (eða eftir smekk)
240 
g
Nýrnabaunir (niðursoðnar má líka nota hvítar- eða svartar)
tsk
Hunang (eða smá 85% súkkulaði)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti