Asískt salat

vegan
kjotlaust
graenmetis

Frískandi og næringarríkt salat með ferskum hráefnum og bragðmikilli asískri dressingu.

Sojabaunir og afurðir úr þeim,
Hnetur og afurðir úr þeim,
Kornvörur sem innihalda glúten,
Asískt salat

Aðferð

https://www.jana.is/

    Dressing

  1. Setjið olíu, hrísgrjónaedik, hlynsíróp, tamarisósu og chillíduft í krukku eða skál og hristið eða pískið vel saman.

  2. Salat

  3. Gerið annað hvort sýrðan rauðlauk samkvæmt uppskrift eða skerið ferskan rauðlauk í mjög þunnar sneiðar og berið fram með salatinu.

  4. Sjóðið edamamebaunir í potti samkvæmt leiðbeiningum á pakkningum. 

  5. Skolið gúrku og skerið í litla kubba. Skolið kóríander og saxið smátt.

  6. Skerið avókadó í tvennt, fjarlægið steininn og takið hýðið af. Skerið síðan í litla teninga. Sjá nánari upplýsingar um meðhöndlun á avókadó.

  7. Ristið furuhnetur á miðlungshita á þurri pönnu í nokkrar mínútur, eða þar til þær verða gullinbrúnar og ilmandi.

  8. Blandið öllum hráefnunum saman í stórri skál og hellið dressingunni yfir. 

Þetta bragðgóða salat má gera á marga vegu. Til dæmis má bæta við fínsöxuðu hvítkáli eða rauðkáli, ristuðum kjúklingabaunum, söxuðum möndlum eða jafnvel kjúklingi eða ofnbökuðu tofu. Einnig er dásamlegt að setja smá hnetusósu (satay) yfir í lokin.

Næringargildi
Jana Steingrímsdóttir

Innihald

2 skammtar
msk
Olía (t.d. ólífu- eða lífræn sesamolía)
0.5 
msk
Hrísgrjónaedik (eða edik að eigin vali)
0.5 
msk
Hlynsíróp (eða önnur sæta)
0.5 
tsk
Tamarisósa (eða sojasósa)
0.1 
tsk
Chillíduft (má sleppa)
15 
g
Sýrður rauðlaukur (pikklaður)
75 
g
Edamame baunir
65 
g
Gúrka
g
Kóríander (eða steinselja)
0.5 
stk
Avókadó
15 
g
Furuhnetur (ristaðar - eða kasjúhnetur)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti