„Best fyrir“ & „síðasti notkunardagur“
Margir velta fyrir sér hvort matvæli séu örugg eftir að dagsetning á umbúðum rennur út. Að skilja muninn á „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ getur sparað peninga, minnkað matarsóun og aukið öryggi.
Fullorðnir ættu að fá um 25–35 grömm af trefjum á dag. Almennt er miðað við að konur fái að minnsta kosti 25 grömm og karlar um 35 grömm á dag. (1)
Börn þurfa einnig trefjar, en minna magn en fullorðnir. Þörfin eykst með aldrinum og um 10 ára aldur má miða við um 20 grömm á dag.
Fullorðnir ættu að fá um 25–35 grömm af trefjum á dag. Börn þurfa einnig trefjar, en þörfin er minni og eykst síðan jafnt og þétt með aldrinum.
Í raun fá margir minna en þetta. Samkvæmt landskönnun á mataræði Íslendinga frá árunum 2019–2021 var meðalneysla trefja um 16 grömm á dag hjá fullorðnum, sem er töluvert undir ráðleggingum. (2)
Trefjar finnast frá náttúrunnar hendi í matvælum úr jurtaríkinu. Fjölbreytt neysla á heilkornum, grænmeti, ávöxtum, berjum, baunum, linsum, hnetum og fræjum er því mikilvæg til að fá nægar trefjar.
Góðir trefjagjafar eru til dæmis:
Það þarf ekki að gera stórar breytingar til að fá meira af trefjum. Smáar breytingar á venjum geta skipt miklu máli.
Til að auka trefjainntöku er til dæmis hægt að:
Best er að auka trefjainntöku smám saman. Ef trefjaneysla er aukin mikið á skömmum tíma getur það valdið loftmyndun, uppþembu eða öðrum óþægindum frá meltingarvegi. Einnig er mikilvægt að drekka nægan vökva samhliða aukinni trefjaneyslu. 4