Súkkulaðismoothieskál
Silkimjúk súkkulaðiskál er dásamlegur og næringarríkur morgunverður eða millibiti.

Silkimjúk súkkulaðiskál er dásamlegur og næringarríkur morgunverður eða millibiti.

Setjið hörfræ í blandara og vinnið þar til úr verður fínt eða aðeins gróft mjöl.
Setjið helminginn af vatninu í blandara ásamt skyri, haframjöli, bananabitum, hnetusmjöri og kakói.
Blandið öllu saman í blandara þar til áferðin verður silkimjúk. Bætið svo vatni smám saman við og stillið magnið eftir því hvort þið viljið hafa þeytinginn þykkan og borða með skeið eða þunnan og drekka úr glasi. Ef þeytingurinn verður of þunnur, bætið þá við hörfræjum, chiafræjum, frosnum ávöxtum, skyri eða próteindufti til að þykkja hann.
Saxið niður heslihnetur og möndlur.
Hellið blöndunni í skálar eða glös. Stráið heslihnetum, möndlum og kakónibbum yfir áður en þið berið fram.
Hér eru fleiri hugmyndir af hráefnum sem hægt er að nota bæði í grunninn og til að toppa smoothieskálarnar með.