Næturhafragrautur með vanillu

graenmetis
kjotlaust

Næringarríkur og einfaldur „overnight“ grautur með haframjöli, skyri og ferskum ávöxtum – fullkomin byrjun á deginum!

Þessi uppskrift er frábær leið til að bæta trefjum inn í mataræðið þrátt fyrir að uppfylla aðeins að hluta til opinber næringarviðmið um trefja (> 5 g af trefjum) í 100 grömmum. 

Gott er að setja grautinn í kæli yfir nótt.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Hnetur og afurðir úr þeim,
Næturhafragrautur með vanillu

Aðferð

https://fuldkorn.dk/
  1. Byrjið á að mala hörfræ í blandara eða matvinnsluvél, haldið eftir litlum hluta af heilum hörfræjum til að setja ofan á grautinn. Leggið möluðu hörfræin til hliðar.

  2. Setjið mulin hörfræ, haframjöl, vatn, vanillu og skyr í stóra skál eða krukku og hrærið vel saman með skeið.

  3. Lokið skálinni eða krukkunni með loki eða matarfilmu og setjið í kæli. Látið grautinn standa yfir nótt eða í um 30 mínútur ef tíminn er naumur.

  4. Áður en grauturinn er borinn fram, stappið banana og blandið honum saman við grautinn.

  5. Skiptið grautnum í skálar eða krukkur eftir því hversu margir skammtar voru gerðir. 

  6. Skolið bláberin og setjið þau ofan á vanillugrautinn ásamt gróft söxuðum möndlum og heilum hörfræjum.

Gott er að nota eins hreina og ferska vanillu og hægt er til dæmis innan úr vanillustöng eða hreint vanilluduft. Ef það er ekki við höndina má nota vanilludropa. Vanillu má líka skipta út fyrir kanil, engifer eða kardimommur, allt eftir smekk.

Til að toppa grautinn má nota alls kyns hnetur, ber eða ávexti, til dæmis ástaraldin eða perur. Einnig er hægt að skipta út stappaða banananum fyrir rifin epli eða eplamús.

Næringargildi
Fuldkornspartnerskabet

Innihald

2 skammtar
1.5 
msk
Hörfræ
80 
g
Haframjöl
1.5 
dl
Vatn
tsk
Vanilla (dropar, ef duft þá minna)
dl
Skyr (hreint)
stk
Bananar
stk
Möndlur
20 
g
Bláber (fersk eða frosin)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti