Vatnsmelónusalat
Ljúffengt og ferskt salat sem passar vel sem forréttur eða meðlæti. Salatið er stútfullt af litríkum og skemmtilegum brögðum.

Ljúffengt og ferskt salat sem passar vel sem forréttur eða meðlæti. Salatið er stútfullt af litríkum og skemmtilegum brögðum.

Skolið gúrkuna og fjarlægið hýðið af melónunni. Skerið gúrkuna í bita og melónuna í teninga.
Takið hýðið af rauðlauk og skerið hann í fínar ræmur. Skerið heilar ólífur til helminga og fjarlægið steina ef þarf.
Ef notaður er fetakubb, brjótið hann þá með fingrunum eða stappið létt með gaffli.
Setjið saman í skál eða á ílangan disk; fyrst melónu svo gúrku, rauðlauk, ólífur og fetaost.
Skolið basilíku og saxið smátt. Toppið salatið með basilíku eða öðrum ferskum kryddjurtum. Smakkið salatið til með smá ólífuolíu og límónusafa.
Það má leika sér með ostana og prófa salatið til dæmis með geitaosti. Einnig má bæta við tómötum, klettasalati, hampfræjum, pistasíukjörnum eða linsubaunum til að auka prótein- og trefjainnihald.
Basilíka hentar vel yfir vetrarmánuðina, myntan fer svo einstaklega vel með vatnsmelónunni og gefur salatinu frískleika yfir sumarið.