Tzatziki
Létt og fersk tzatziki-sósa með gúrku, hvítlauk og sítrónu sem hentar vel með grillmat, pítum, shawarma eða sem ídýfa með grænmeti.
Létt og fersk tzatziki-sósa með gúrku, hvítlauk og sítrónu sem hentar vel með grillmat, pítum, shawarma eða sem ídýfa með grænmeti.
Skerið sítrónu í tvennt og kreistið safann í skál. Bætið léttri grískri jógúrt og hlynsírópi út í og blandið vel með skeið.
Skolið gúrku og rífið gróft með rifjárni. Setjið rifnu gúrkuna í hreint viskastykki og kreistið umframvökva úr henni. Einnig má setja gúrkuna í sigti yfir skál og láta vökvann leka af henni. Þrýstið á gúrkuna með skeið til að ná sem mestum vökva úr henni.
Afhýðið hvítlauk og rífið eða saxið mjög fínt. Bætið honum í skálina ásamt rifnu gúrkunni. Kryddið með salti og pipar eftir smekk.
Skolið og saxið dill smátt ef þið notið ferskt.
Hrærið vel saman þar til allt hefur blandast. Gott er að láta sósuna standa í ísskáp í 10–15 mínútur áður en hún er borin fram svo bragðið nái að þróast betur.
Hægt er að sleppa dillinu eða nota ferska eða þurrkaða steinselju eða myntu í staðinn. Einnig má nota sýrðan rjóma og létta gríska jógúrt til helminga eða bæta smá majónesi út í fyrir kremkenndari áferð.