Kjúklingavefja (Shawarma)

Einföld en bragðmikil vefja með safaríkum kjúklingi, ilmandi kryddum og fersku grænmeti.

Kjötið er gott að marinera yfir nótt. Sá tími er ekki tekinn inn í undirbúnings- eða eldunartíma.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Kjúklingavefja

Aðferð

https://salteldhus.is/

    Kjúklingur og grænmeti

  1. Skerið kjúklinginn í jafnstóra bita eða strimla. Ef notaðar eru bringur er gott að skera þær langsum til helminga áður en þær eru eldaðar.

  2. Blandið olíu, shawarmakryddi, helmingnum af saltinu og smá pipar saman í skál. Setjið kjúklinginn út í og geymið í kæli í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt til að marinerast, ef tími leyfir.

  3. Stillið ofninn á grill eða mjög háan hita. 

  4. Grillið kjúklinginn í ofni á bökunarpappír, á plötu eða í eldföstu móti, þar til hann er eldaður í gegn. Smærri bitar taka yfirleitt 10–15 mínútur, helmingaðar bringur 15–20 mínútur. Bringubita er gott að skera í minni bita áður kjötið er sett í vefjurnar.

  5. Skolið rauðkál, papriku og salat og skerið í strimla eða hæfilega stóra bita.

  6. Rétt fyrir samsetningu, hitið vefjurnar örstutt á heitri pönnu (sjá einnig vefjuuppskrift hér). Raðið kjúklingi og grænmeti á hverja vefju og hellið vel af sósu yfir. 

  7. Sósan

  8. Takið hýðið af hvítlauknum og saxið smátt. Kreistið safann úr sítrónu.

  9. Setjið saman í skál jógúrt, hvítlauk, sítrónusafa og það sem eftir er af salti og pipar. Hrærið vel saman.

Verið óhrædd við að bæta öðru grænmeti á vefjur eins og rauðlauk, tómötum, gúrku, rifnum gulrótum eða granateplafræjum. Svartar baunir eða nýrnabaunir passa líka einstaklega vel á vefjur.

Ekta heilhveiti shawarma-brauð fæst oft frosið í sérbúðum sem selja arabísk matvæli.

Næringargildi
Sigríður Björk Bragadóttir

Innihald

2 skammtar
300 
g
Kjúklingur (bringur eða annar hluti kjúklings)
tsk
Olía (t.d. ólífu- eða repjuolía)
tsk
Shawarmakrydd (eða kryddblanda að eigin vali)
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
0.25 
stk
Rauðkál (eða hvítkál)
0.5 
stk
Paprika
40 
g
Salat (t.d. klettasalat)
stk
Vefjur (úr heilhveiti)
rif
Hvítlaukur
msk
Sítrónusafi
dl
Jógúrt (hreint)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti