Tortilla með kjúkling, eggaldin og maíssalsa

Réttur sem hentar allri fjölskyldunni og má aðlaga að þeim tíma sem þið hafið. Nota má keypta salsasósu og maís í tímaþröng en prófið heimagerðu útgáfurnar ef tíminn leyfir.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Tortilla með kjúkling, eggaldin og maíssalsa

Aðferð

https://fuldkorn.dk/

    Kjúklingur

  1. Hitið ofn í 190°C.

  2. Setjið kjúklinginn í eldfast mót og penslið með olíu (notið um 1/2 af olíunni). Saltið, piprið og bætið öðrum kryddum við eftir smekk. Leggið álpappír yfir mótið og bakið í ofninum í um 25 mínútur.

  3. Þegar kjúklingurinn er eldaður í gegn rífið hann í smærri bita með tveimur göfflum. Geymið hann í eldfasta mótinu þar til hann er borinn fram eða hitið fyrir notkun.

  4. Bakað eggaldin

  5. Skolið eggaldin og skerið í báta.

  6. Takið utan af og saxið 1/3 af hvítlauknum og blandið saman við 1/3 af olíunni. Penslið eggaldinið með olíunni.

  7. Bakið eggaldinbátana í ofni við 190°C þar til þeir eru orðnir gylltir eða í um 20 mínútur.

  8. Kornsalsa

  9. Sjóðið maís ef hann er ferskur. Frosinn maís má sjóða eða steikja samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Ef notaður er maískólfur þá þarf fyrst að sjóða hann í vatni í 10 til 12 mínútur, láta hann svo kólna, og svo skera maískornin af. Setjið maísinn í skál.

  10. Takið utan af rauðlauknum, skerið hann í mjög þunnar sneiðar og blandið saman við maísinn.

  11. Skolið og saxið 1/2 af kóríanderinu niður og kreistið safann úr límónunni og setjið yfir maísinn ásamt chillísósu og smá ólífuolíu. Saltið og piprið salsað eftir smekk.

  12. Tómatasalsa

  13. Skolið og skerið tómatana og paprikuna í litla teninga. Saxið jalapeno smátt. Setjið allt saman í skál. og blandið vel.

  14. Saxið restina af hvítlauknum smátt og bætið í skálina með afgangnum af olíunni og edikinu. Kryddið með salti og pipar ef þarf og blandið öllu vel saman.

  15. Sýrður með kóríander

  16. Setjið sýrðan rjóma í skál og hrærið saman. Skolið og saxið afganginn af kóríanderinu og blandið saman við.

  17. Samsetning

  18. Hitið tortillakökurnar á heitri pönnu, berið kökurnar fram með kjúklingi, eggaldini, maíssalsa, krydduðu tómatasalsa og sýrða rjómanum.

Hver og einn getur raðað á sína tortilluköku eftir smekk. Upplagt er að skera niður annað grænmeti sem til er og bjóða einnig sem meðlæti. 

Ef þið viljið baka ykkar eigin tortillakökur má finna einfalda og trefjaríka uppskrift hér.

Næringargildi
Fuldkornspartnerskabet

Innihald

2 skammtar
350 
g
Kjúklingur (t.d. kjúklingabringur)
msk
Olía (t.d. ólífu- eða repjuolía)
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
0.5 
stk
Eggaldin
1.5 
rif
Hvítlaukur
150 
g
Maís (ferskur, frosinn eða úr dós)
0.5 
stk
Rauðlaukur
0.5 
tsk
Chillísósa (að eigin vali - t.d. Tabasco)
20 
g
Kóríander (ferskt - valkvætt)
0.5 
stk
Límóna (safinn)
stk
Tómatar (ferskir, stórir)
stk
Paprika
msk
Jalapenos (úr krukku)
0.5 
tsk
Rauðvínsedik
dl
Sýrður rjómi (10%)
stk
Vefjur (t.d. heilhveiti)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti