Þorskur með grænmeti, appelsínum, döðlum og jarðhnetum
Léttur, litríkur og bragðmikill réttur með girnilegu grænmeti ásamt appelsínum, döðlum, jarðhnetum og salatosti sem fullkomna áferðina.

Léttur, litríkur og bragðmikill réttur með girnilegu grænmeti ásamt appelsínum, döðlum, jarðhnetum og salatosti sem fullkomna áferðina.

Hitið ofninn í 200°C.
Skerið þorskinn í hæfilega stóra bita og raðið bitunum í eitt lag í eldfast mót.
Skolið appelsínuna og skerið í grófa bita, hýðið má vera á. Takið utan af hvítlauk, skerið rifin í tvennt og saxið döðlurnar í litla bita.

Skolið papriku og skerið í hæfilega stóra bita. Takið utan af rauðlauk og skerið niður. Skolið ferska steinselju og myntu og saxið smátt ef þið viljið nota fersk krydd.
Stráið kryddblöndunni yfir fiskinn og dreypið olíu yfir. Raðið appelsínubitum, hvítlauk, döðlum, papriku, rauðlauk og jarðhnetum ofan á fiskinn. Stráið að lokum steinselju og myntu yfir.
Kryddið með salti og pipar eftir smekk og dreifið salatostinum jafnt yfir réttinn.
Bakið í ofni í um 20-25 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn.
Hægt að nota ýmsar kryddblöndur sem henta fiski og sömuleiðis má nota þær kryddjurtir eða þurrkuð krydd sem eru til á heimilinu hverju sinni.
Berið fiskinn fram m.a. með íslensku bankabyggi eða nýjum íslenskum kartöflum og fersku salati. Hægt er að skipta út appelsínum fyrir mandarínur, rauðlauk fyrir lauk eða nýta það grænmeti sem til er í ísskápnum og prófa sig áfram með réttinn.