Þorskhnakkar með tómata- og döðlupestó

kjotlaust
fiskur

Safaríkir þorskhnakkar með sætu og krydduðu tómata- og döðlupestói. Hollur og fljótlegur réttur sem slær í gegn við öll tilefni.

Fiskur og fiskafurðir,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Hnetur og afurðir úr þeim,
Jarðhnetur og afurðir úr þeim,
Þorskhnakkar með tómata- og döðlupestó

Aðferð

https://www.jana.is/

    Tómata- og döðlupestó

  1. Skolið tómata og gulrætur. Afhýðið epli og hvítlauk. Skerið allt í passlega stóra bita. 

  2. Setjið tómata, gulrætur, epli, hvítlauk, sólþurrkaða tómata, rauðlauk og döðlur í matvinnsluvél. Bætið síðan út í chili-flögum, oreganó, smá sítrónusafa og olíu (jafnvel smá vatni). Maukið allt saman í um 1 mínútu eða þar til blandan er orðin nokkuð jöfn og vel blönduð.

  3. Ristið furuhnetur á þurri pönnu. Setjið þær í skál ásamt muldum fetaosti og saxaðri basilíku. Blandið maukinu úr matvinnsluvélinni saman við.

  4. Þorskhnakkar og meðlæti

  5. Hitið ofninn í 190°C.

  6. Skolið blómkálið og skerið í miðlungsstór blóm. Raðið á ofnplötu, dreypið yfir smá olíu og kryddið með salti og pipar. Bakið í ofni í 15–20 mínútur, eða þar til blómkálið er orðið gullinbrúnt. Hrærið í af og til meðan það bakast. 

  7. Skerið þorskhnakkana í passlega stóra bita og leggið á bökunarpappír í eldfast mót. Kryddið með smá salti og pipar.

  8. Dreifið pestóinu yfir fiskbitana. Bakið í ofni í um 20 mínútur, eða þar til fiskurinn er fulleldaður og flagnar auðveldlega.

  9. Ristið graskersfræ á þurri pönnu í nokkrar mínútur við miðlungsháan hita og leggið til hliðar.  

  10. Skerið sítrónu í nokkra báta - til að kreista yfir fiskinn við matarborðið. 

Berið ofnbakað blómkál, ristuð graskersfræ og sítrónubáta fram með fiskinum. Þorskhnakkarnir passa einnig vel með fersku salati og bökuðu grænmeti. Rétturinn fer vel með byggi, búlgur eða kínóa – allt eftir smekk og aðstæðum.

Í þessa uppskrift er tilvalið að nýta þau hráefni sem eru við hendina. Pestóið má laga úr mismunandi grænmeti og aðlaga eftir því sem hentar. Sama á við um meðlæti – frábært tækifæri til að nýta það sem er í ísskápnum.

Næringargildi
Jana Steingrímsdóttir

Innihald

2 skammtar
0.5 
stk
Tómatar
0.5 
stk
Gulrætur
0.5 
stk
Epli (grænt)
rif
Hvítlaukur
45 
g
Sólþurrkaðir tómatar
20 
g
Laukur (rauður)
stk
Döðlur (ferskar eða þurrkaðar)
0.25 
g
Chillí (t.d. chillíflögur - valkvætt)
0.25 
tsk
Oreganó
stk
Sítróna
msk
Olía (kaldpressuð ólífuolía - má nota vatn á móti)
25 
g
Furuhnetur
40 
g
Fetaostur
2.5 
g
Basilíka (fersk - eða þurrkuð en þá aðeins minna af henni)
300 
g
Blómkál (eða spergilkál)
0.1 
tsk
Salt
0.1 
tsk
Pipar
300 
g
Fiskur (t.d. þorskhnakkar, roð- og beinlaus fiskur)
20 
g
Graskersfræ
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti