Skyrfrauð
Ljúffengur og silkimjúkur eftirréttur með sætum vanillukeim og ferskum berjum.

Ljúffengur og silkimjúkur eftirréttur með sætum vanillukeim og ferskum berjum.

Forhitið ofninn í 180°C.
Brjótið eggin varlega, skiljið að hvítur og rauður og setjið í sitthvora skálina. Skolið sítrónu og rífið börkinn utan af með rifjárni.
Stífþeytið eggjahvíturnar með hrærivél eða handþeytara. Þegar þær byrja að freyða, bætið sykri og vanillu smám saman út í á meðan þeytt er áfram. Þeytið þar til blandan verður glansandi og svo stíf að hún helst kyrr, jafnvel þegar skálinni er snúið á hvolf.
Þeytið eggjarauðurnar saman við skyrið í annarri skál. Bætið síðan sítrónuberki út í og blandið vel saman.
Blandið blöndunum varlega saman og setjið í eldfast mót. Hægt er að nota lítil mót fyrir hvern og einn eða eitt stærra mót.
Skerið niður ávexti í bita og dreifið ofan á ásamt berjum.
Bakið í ofni í 20 til 25 mínútur.