Skýja shake

graenmetis
kjotlaust

Ljúffengur og hollur þeytingur með silkimjúkri áferð, ljómandi bláum lit og fersku bragði. Fullkominn til að byrja daginn eða sem millimál.

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Kornvörur sem innihalda glúten,
Skýja shake

Aðferð

https://www.jana.is/

  1. Ef ekki eru til frosnir bananar, skerið niður banana og setjið í box með loki. Frystið í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt. Gott er að nýta banana sem eru komnir á síðasta snúning og eiga þá tilbúna í frysti fyrir þennan þeyting.

  2. Setjið öll hráefnin nema grísku jógúrtina í blandara og maukið þar til blandan verður silkimjúk.

  3. Takið smá af grískri jógúrt með teskeið og smyrjið henni innan á glasið til skrauts.

  4. Hellið bláu blöndunni í glasið og njótið vel. 

Óhætt er að skipta út eða helminga bananann og nota í staðinn tofu, mjólk, meiri hafra eða frosna ávexti eða grænmeti. Til dæmis er tilvalið að bæta við frosnum ananas, mangói eða blómkáli fyrir meira bragð og áferð.

Einnig má bæta í þeytinginn næringarríkum hráefnum eins og hampfræjum, hveitikími, próteindufti, chiafræjum, hörfræjum, hnetusmjöri eða kasjúhnetum. 

Næringargildi
Jana Steingrímsdóttir

Innihald

2 skammtar
stk
Bananar (frosnir - má nota ferska)
tsk
Spirulina (blátt duft)
tsk
Vanilla (dropar)
dl
Ab-mjólk (hrein eða bláberja)
55 
g
Bláber (fersk eða frosin)
msk
Grísk jógúrt (eða hreint skyr)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti