Skötuselur í dásamlegum hunangs- og sinnepslegi

kjotlaust
fiskur

Skötuselurinn er bakaður í sósu með hunangi, sinnepi og sítrónu sem gefur ljúft og gott jafnvægi milli sætu og sýru. Hentar vel bæði dags daglega og við hátíðleg tilefni.

Fiskur og fiskafurðir,
Sinnep og afurðir úr því,
Skötuselur í dásamlegum hunangs- og sinnepslegi

Aðferð

https://www.jana.is/
  1. Hitið ofninn í 200°C. 

  2. Skerið fiskinn í hæfilega bita og raðið í eldfast mót. 

  3. Skolið steinselju og saxið smátt, hvort sem hún er fersk eða frosin. Kreistið safann úr sítrónunni. Hrærið síðan saman í skál steinselju, sítrónusafa, kapers, hunangi, sinnepi, kryddblöndu, salti, pipar og olíu. Hellið blöndunni yfir fiskinn.

    Í stað skötusels má nota annan þéttan hvítan fisk, til dæmis þorsk, löngu eða keilu.

  4. Bakið fiskinn í 15 til 20 mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn.

Hægt er að bera réttinn fram með blöndu af ofnbökuðum sætum kartöflum, spergilkáli og lauk – eða öðru grænmeti sem til er í ísskápnum og gott er að nýta.

Næringargildi
Jana Steingrímsdóttir

Innihald

2 skammtar
350 
g
Fiskur (skötuselur, roð- og beinlaus)
g
Steinselja (fersk eða frosin)
0.5 
stk
Sítróna (safinn)
0.5 
msk
Kapers
tsk
Hunang (eða eftir smekk)
g
Sinnep (dijon eða annað)
g
Kryddblanda (að eigin vali)
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
msk
Olía (t.d. kaldpressuð ólífuolía)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti