Sætkartöflumús með pekanhnetutoppi
Mjúk sætkartöflumús með stökkum pekanhnetutoppi sem gefur réttinum góða áferð. Einfalt meðlæti sem hentar vel með flestum réttum, bæði spari og hversdags.

Mjúk sætkartöflumús með stökkum pekanhnetutoppi sem gefur réttinum góða áferð. Einfalt meðlæti sem hentar vel með flestum réttum, bæði spari og hversdags.

Hitið botnfylli af vatni í hæfilega stórum potti.
Flysjið og skerið sætar kartöflur í grófa bita. Passlegt er að skera eina kartöflu í um 6-8 bita.
Setjið kartöflurnar í pottinn, setjið lok yfir og sjóðið í litlu vatni í 10–20 mínútur. Einnig má hafa þær í gufusigti yfir sjóðandi vatni, þá helst bragðið best. Stingið í þær með gaffli undir lok tímans, þegar þær eru mjúkar í gegn eru þær tilbúnar.
Hellið vatninu varlega frá þegar kartöflurnar eru tilbúnar og færið þær yfir í hrærivélaskál eða aðra stóra skál.
Bætið salti, smjöri, rjómaosti, kanil, múskati og pipar í skálina. Maukið saman í hrærivél, með handþeytara, kartöflustappara eða gaffal, allt eftir því hvað þið eigið til.
Hitið ofninn í 200°C.
Finnið til hæfilega stórt eldfast mót og smyrjið það með olíu. Setjið sætkartöflumúsina í mótið.
Saxið pekanhnetur gróft eða hafið þær heilar og raðið jafnt yfir sætkartöflumúsina.
Bakið í ofninum í 10-15 mínútum eða þar til hnetutoppurinn er orðinn aðeins stökkur.
Á hátíðsdögum er hægt að bæta örlitlu hlynsírópi eða hunangi saman við pekanhneturnar áður en þær fara á sætkartöflumúsina. Einnig er hægt að nota valhnetur fyrir hnetutoppinn í staðinn fyrir pekanhneturnar.
Sætkartöflumús passar einstaklega vel með kalkúni, kjúklingi, kjötbollum, lambakjöti, hnetusteik og öllu mögulega öðru. Ferskt salat myndi svo toppað slíka máltíð.