Pastasalat með lax og grænmeti

kjotlaust
fiskur

Ljúffengt pastasalat tilvalið sem kvöld- eða hádegismatur. Hikið ekki við að bæta öðru grænmeti eða kryddjurtum úr ísskápnum í réttinn.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Fiskur og fiskafurðir,
Sellerí og afurðir úr því,
Pastasalat með lax og grænmeti

Aðferð

https://fuldkorn.dk/

    Hvítlauksdressing

  1. Takið utan af hvítlauk og saxið fínt eða pressið. Blandið saman hvítlauk, olíu og ediki í litla skál. Kryddið með smá salti og pipar og setjið til hliðar.

  2. Salat

  3. Hitið vatn í potti og sjóðið pastað eins og sagt er til um á umbúðunum. Sjá nánar um suðu á pasta.

  4. Skolið allt grænmetið og kryddjurtirnar með hreinu vatni.

  5. Sjóðið erturnar (grænu baunirnar) í léttsöltuðu vatni í potti í 2–3 mínútur.

  6. Skerið sykurbaunirnar, selleríið og vorlaukinn í hæfilega stórar og þunnar lengjur.

  7. Skerið gúrkuna langsum í tvennt. Ef vill má fjarlægja blauta kjarnann með skeið. Skerið síðan gúrkuna í þunnar lengjur.

  8. Saxið steinseljuna og dillið smátt. Ef þurrkað krydd er notað, þá þarf allavega helmingi minna magn.

  9. Blandið öllum innihaldsefnum saman í skál.

  10. Berið pastasalatið fram með heitreyktum eða ofnbökuðum laxi og dressingu. 

Þetta salat er einnig ljúffengt kalt. Ef ekki fæst heitreykur lax, má nota ofnbakaðan lax (bakið laxinn þá í 10–12 mínútur við 200°C í ofni). Einnig er hægt að nota reyktan lax eða jafnvel túnfisk, en þá í minna magni.

Til að auka próteininnihaldið er frábært að bæta soðnum eggjum eða kjúklingabaunum út á salatið.

Næringargildi
Fuldkornspartnerskabet

Innihald

2 skammtar
0.5 
rif
Hvítlaukur
1.5 
msk
Olía (t.d. ólífuolía eða repjuolía)
msk
Eplaedik (eða annað edik, má líka nota sítrónu)
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
100 
g
Pasta (heilhveitipasta t.d. skrúfur eða penne)
125 
g
Ertur (öðru nafni grænar baunir, frosnar eða ferskar)
125 
g
Sykurbaunir
stk
Sellerí
stk
Vorlaukur
0.25 
stk
Gúrka
15 
g
Steinselja (fersk eða þurrkuð)
g
Dill (ferskt eða þurrkað)
100 
g
Lax (heitreyktur, má einnig vera ferskur)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti