Pastasalat með karrídressingu
Litríkt og gott pastasalat með fersku grænmeti, stökkum furuhnetum og mildri karrýdressingu. Hentar vel sem léttur aðalréttur eða meðlæti.

Litríkt og gott pastasalat með fersku grænmeti, stökkum furuhnetum og mildri karrýdressingu. Hentar vel sem léttur aðalréttur eða meðlæti.

Sjóðið pastað í potti samkvæmt leiðbeiningum á pakka, oft í um 10-15 mínútur. Nánari leiðbeiningar um suðu á pasta.
Skolið allt grænmeti og hreinsið sveppina. Skerið brokkolí í litlar greinar, papriku í teninga og gulrætur og sveppi í þunnar sneiðar. Skerið spínat í munnbitastærð og kirsuberjatómata í tvennt.
Setjið brokkolíið í skál. Þegar pastað er tilbúið, hellið sjóðandi vatninu af pastanu yfir brokkolíið og látið standa í um 5 mínútur til að mýkjast. Hellið síðan vatninu frá.
Steikið sveppi og gulrætur upp úr olíu á pönnu.
Ristið furuhneturnar á þurri pönnu þar til þær verða gullinbrúnar.
Blandið öllum hráefnunum saman í stóra skál.
Blandið sýrðum rjóma, karrí, salti og pipar saman í skál. Hrærið dressingunni vel saman við pastasalatið áður en þið berið það fram.
Í þessa uppskrift er óhætt að setja það grænmeti sem er í uppáhaldi eða til er í kæli. Einnig er tilvalið að bæta við kjúklingabaunum eða linsubaunum fyrir góða áferð, prótein og trefja.