Paprikur með kjötfyllingu
Ljúffengar paprikur fylltar með bragðmikilli kjötblöndu, hvítum baunum og mexíkóskum kryddum. Fullkominn réttur sem er bæði einfaldur og spennandi, og hentar jafnt hversdags sem á hátíðarborðið!

Ljúffengar paprikur fylltar með bragðmikilli kjötblöndu, hvítum baunum og mexíkóskum kryddum. Fullkominn réttur sem er bæði einfaldur og spennandi, og hentar jafnt hversdags sem á hátíðarborðið!

Hitið olíu á pönnu við meðalháan hita. Bætið nautahakki á pönnuna og steikið þar til það hefur brúnast vel. Merjið hakkið með sleif eða spaða svo það verði jafnt og án stórra klumpa.
Takið utan af lauk og hvítlauk og saxið smátt. Bætið út á pönnuna með hakkinu síðustu 3–4 mínúturnar og léttsteikið við meðalhita.
Skolið og fínsaxið chillípipar og landið saman við kjötið ásamt kryddiblöndu, tómatpúrru, chillísósu og vatni. Sjóðið við vægan hita í um 5 mínútur. Hrærið í af og til.
Setjið baunirnar í sigti og skolið þær með köldu vatni.. Bætið baununum út í pönnuna og sjóðið í 5 mínútur.
Skolið paprikur og skerið til helminga. Fjarlægið fræin. Sjóðið í potti með léttsöltuðu vatni við vægan hita í 3 mínútur.
Bragðbætið sósuna til ef þarf með salti, pipar eða öðrum kryddum.
Fyllið paprikuhelmingana með kjötfyllingunni.
Gott er að bera paprikurnar fram með fersku salati og brúnum hrísgrjónum eða byggi.
Auðvelt er að bæta í fyllinguna því grænmeti sem til er í kæli svo sem rifnum gulrótum og spínati eða maís sem gerir bragðið aðeins sætara. Smá rifinn ostur eða kotasæla ofan á paprikuna færir réttinn í sparibúning.