Ofnbakaður lax með frábæru salsa

kjotlaust
fiskur

Lax með fersku salsa – fullkomið fyrir bragðmikinn en einfaldan kvöldmat. 

Fiskur og fiskafurðir,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Hnetur og afurðir úr þeim,
Sojabaunir og afurðir úr þeim,
Ofnbakaður lax með frábæru salsa

Aðferð

https://www.jana.is/

    Salsa-marinering

  1. Skrælið engifer, takið utan af hvítlauk, skolið chili og hreinsið vorlauk. Rífið engifer með rifjárni, pressið hvítlaukinn og skerið chili, vorlauk og salatost smátt.

  2. Kreistið safann úr sítrónu. Blandið engifer, hvítlauk, chili, vorlauk, salatosti, sítrónusafa, tamarisósu og kasjúhnetum saman í skál og hrærið vandlega.

  3. Lax

  4. Setjið fiskinn í eldfast mót. Hellið marineringunni úr skálinni yfir fiskinn og látið marinerast í ísskáp í 30–60 mínútur (má vera lengur).

  5. Hitið ofninn í 180°C.

  6. Bakið fiskinn í eldföstu móti í 18 mínútur í ofni. Þið getið einnig grillað hann en þá tekur eldunin um 7 mínútur.

Gott er að bera réttinn fram með kartöflum eða sætum kartöflum, og jafnvel ofnbökuðu rósakáli, brokkolíi eða blómkáli.

Næringargildi
Jana Steingrímsdóttir

Innihald

2 skammtar
g
Engifer
rif
Hvítlaukur
0.25 
stk
Chillí
stk
Vorlaukur
30 
g
Salatostur
0.25 
stk
Sítróna (safinn)
1.5 
msk
Tamarisósa
30 
g
Kasjúhnetur
350 
g
Lax (beinlaus)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti