Möndluhjúpuð bleikja með arabísku bulgursalati

fiskur
kjotlaust

Möndluhjúpuð bleikja með arabísku bulgursalati er næringarríkur og bragðgóður fiskréttur með fersku grænmeti, sítrónukeim og framandi kryddum.

Fiskur og fiskafurðir,
Hnetur og afurðir úr þeim,
Kornvörur sem innihalda glúten,
Möndluhjúpuð bleikja með arabísku bulgursalati

Aðferð

https://salteldhus.is/

    Bulgursalat

  1. Sjóðið bulgur samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum, yfirleitt 1 hluti bulgur og 2 hlutar vatn, í 10–15 mínútur þar til það er mjúkt en með smá biti. Hellið af umframvatni og látið bulgurið kólna lítillega.

  2. Skolið sítrónuna og þurrkið. Rífið börkinn með fíngerðu rifjárni og kreistið safann úr henni. Skolið myntuna, hristið vatnið af og skerið smátt.

  3. Setjið soðið bulgur í stóra skál og bætið við sítrónuberki, sítrónusafa, myntu, örlitlu salti, pistasíuhnetum, kúrenum og smá olíu (geymið restina fyrir steikinguna). Hrærið vel saman.

  4. Bleikja

  5. Fjarlægið roðið af bleikjuflökunum ef þess þarf og beinhreinsið. Skerið síðan flökin í passlega bita til steikingar.

  6. Setjið möndluflögur í skál og veltið bleikjubitunum upp úr þeim þannig að þeir þekjist vel. Kryddið létt með salti og pipar.

  7. Hitið olíu á rúmgóðri pönnu. Steikið bleikjubitana við meðalháan hita í um 2 mínútur á hvorri hlið eða þar til möndluhjúpurinn er gullinbrúnn og fiskurinn eldaður í gegn.

Berið bleikjuna fram með bulgursalatinu. Ofnbakað brokkolí, blómkál eða annað grænmeti passar líka vel sem meðlæti og gerir máltíðina enn bragðbetri.

Næringargildi
Sigríður Björk Bragadóttir

Innihald

2 skammtar
150 
g
Bulgur (má nota kínóa eða bygg)
0.5 
stk
Sítróna (sítrónubörkur og safi)
g
Mynta
0.25 
tsk
Salt
msk
Pistasíuhnetur
msk
Kúrenur (eða rúsínur - má sleppa)
0.5 
msk
Olía (t.d. ólífuolía)
400 
g
Bleikja
30 
g
Möndluflögur
0.25 
tsk
Pipar
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti