Mexíkósk skál

Einföld og litrík mexíkósk skál með hakki, fersku grænmeti og salsa. 

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Mexíkósk skál

Aðferð

  1. Hitið olíu á pönnu. Bætið nautahakki á pönnuna og steikið við meðalháan hita í 5–7 mínútur. Hrærið reglulega og brjótið hakkið upp með spaða svo það verði ekki í klumpum. Kryddið með uppáhalds kryddblöndunni, salti og pipar.

  2. Setjið svartar baunir úr dós í sigti og skolið undir köldu vatni. Látið renna vel af þeim. Bætið þeim út á pönnuna þegar hakkið er steikt í gegn. Steikið í 2-3 mínútur til viðbótar og kryddið eftir smekk.

  3. Takið utan af rauðlauk og avókadó, sjá nánari upplýsingar um meðhöndlun á avókadó. Skolið tómata, salat og kóríander. Skerið rauðlauk, avókadó og tómata í minni bita. Rífið salatið niður og saxið kóríander.

  4. Raðið salatblöðum í botninn á skál. Bætið hakki, baunum, tómötum, rauðlauk og avókadó ofan á.

  5. Berið skálina fram með salsasósu, sýrðum rjóma og fersku kóríander.

Hægt er að leika sér með salatið og nota þær baunir, grænmeti, kryddjurtir og sósur sem til eru hverju sinni.

Einnig er hægt að baka svartar baunir áður við 200°C með skvettu af olíu, smá salti og kryddblöndu að eigin vali í 15-20 mínútur. Sumum finnst líka gott að hafa þær ferskar með svo ykkar er valið.  

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
tsk
Olía (t.d. ólífu- eða repjuolía)
300 
g
Nautahakk
tsk
Kryddblanda (t.d. taco kryddblanda)
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
120 
g
Svartar baunir (úr dós)
0.5 
stk
Rauðlaukur
stk
Avókadó
stk
Tómatar
250 
g
Salat (að eigin vali)
10 
g
Kóríander (ferskt - valkvætt)
msk
Salsasósa
msk
Sýrður rjómi (t.d. 10%)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti