Matarmikið haustsalat
Matarmikið haustsalat fullt af litum og bragði.

Matarmikið haustsalat fullt af litum og bragði.

Kreystið safann úr límónunni og setjið hann ásamt olíu (geymið smá fyrir blómkál og sætar kartöflur), hlynsírópi, salti, pipar og hamfræum í krukku með loki. Hristið vel þar til öll hráefnin hafa blandast saman.
Hitið ofninn í 200°C.
Skolið blómkál og sæta kartöflu og skerið í litla bita. Raðið á ofnplötu, dreypið yfir olíu og kryddið með grænmetiskryddblöndu eða öðru kryddi að eigin vali. Bakið í ofni í um 25 mínútur, eða þar til grænmetið er mjúkt og fallega gullið.
Skolið kjúklingabaunir og þerrið síðan lítillega.
Skolið og skerið epli í teninga. Saxið sólþurrkaða tómata, hnetur og steinselju (eða aðrar kryddjurtir) - munið að skola steinseljuna áður.
Skolið salatið og setjið í stóra skál ásamt bökuðu blómkáli og sætum kartöflum. Bætið við kjúklingabaunum, eplum, sólþurrkuðum tómötum, hnetum, steinselju og salatosti. Hellið dressingunni yfir og kryddið með salti og pipar eftir smekk. Blandið öllu varlega saman.
Ef ekki gefst tími til að útbúa dressingu er hægt að nota smá af olíunni af salatostinum í staðinn. Einnig má blanda saman ólífuolíu og oreganó eða ítalskri kryddblöndu í skál og hella yfir salatið.