Linsubaunatacos
Bragðmiklar og næringarríkar vefjur með reyktum linsubaunum, sýrðum rauðlauk og sólþurrkuðum tómötum - hin fullkomna blanda.

Bragðmiklar og næringarríkar vefjur með reyktum linsubaunum, sýrðum rauðlauk og sólþurrkuðum tómötum - hin fullkomna blanda.

Setjið linsubaunirnar í sigti og skolið vel undir köldu vatni. Sjóðið í vatni með smá salti samkvæmt leiðbeiningum á pakka, í um 15–20 mínútur. Hellið af umframvatni og leggið til hliðar.
Á meðan linsurnar sjóða sýrið rauðlauk samkvæmt uppskrift ef þið viljið gera hann sjálf.

Afhýðið lauk, skerið í tvennt og síðan í þunnar sneiðar. Takið utan af hvítlauk, pressið eða saxið smátt. Saxið sólþurrkaða tómata smátt.
Hitið olíu á pönnu og steikið laukinn við miðlungshita í 5-7 mínútur, þar til hann verður mjúkur og karamellukenndur. Hrærið af og til og bætið við örlitlu vatni ef hann byrjar að þorna. Bætið hvítlauknum út á pönnuna og steikið í 1 til 2 mínútur til viðbótar.
Bætið næst sólþurrkuðum tómötum og linsubaunum út á pönnuna ásamt reyktri papriku og oreganó. Hrærið öllu saman og bætið örlitlu vatni við ef þarf. Smakkið til með salti og pipar.
Skerið hvítkál í fínar ræmur. Skolið salatið og skerið niður. Skolið tómata og skerið í tvennt eða litla bita. Skerið avókadó í langar, þunnar sneiðar.
Setjið sýrðan rjóma í skál og hrærið aðeins saman. Ef vill má bæta við örlitlu af reyktri papriku og oreganó fyrir aukið bragð.
Hitið vefjurnar örstutt á hvorri hlið á heitir pönnu.
Berið linsubaunamaukið og vefjurnar fram með grænmetinu, sýrða lauknum og sýrða rjómanum. Gott er að bæta við fersku kóríanderi eða steinselju og nýta það grænmeti sem til er hverju sinni.
1 g þurrar linsur eru um 2,6 g soðnar linsur.