Lasagna með kotasælu

Ljúffengt og matarmikið lasagna þar sem bragðgóðir tómatar og kjötsósa með grænmeti mætast - fullkomið fyrir alla fjölskylduna.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Sellerí og afurðir úr því,
Lasagna með kotasælu

Aðferð

https://fuldkorn.dk/

    Kjötsósa

  1. Afhýðið laukinn og hreinsið gulræturnar og selleríið. Skerið síðan allt í litla teninga.

  2. Steikið fyrst laukinn í potti upp úr smá olíu í 3 til 5 mínútur við miðlungshita. Notið stóran pott, jafnvel leirpott.

  3. Bætið sellerí og gulrótum út í pottinn og steikið í 3 til 4 mínútur til viðbótar. Hægt er að rífa gulræturnar smátt niður eða sjóða þær fyrst í minni potti og bæta þeim svo út í svo þær eldist vel í gegn.

  4. Steikið nautahakkið á pönnu með smá olíu. Þegar kjötið er eldað í gegn bætið því út í pottinn með grænmetinu. 

  5. Bætið tómatpúrru í pottinn, síðan hökkuðum tómötum og vatni. Hrærið vel saman.

  6. Takið utan af hvítlauk og skolið chili og saxið smátt, setjið út í kjötsósuna ásamt lárviðarlaufi, timían og oreganó. Leyfið sósunni að malla í að minnsta kosti 20 mínútur – en hún verður enn bragðmeiri ef hún fær að malla lengi, jafnvel í nokkrar klukkustundir.

  7. Saltið og piprið kjötsósuna til eftir smekk. 

  8. Samsetning og eldun

  9. Hitið ofninn í 180˚C.

  10. Setið lasagnið saman lagskipt í eldföstu móti með lögum af kjötsósu, lasagnaplötum og kotasælu til skiptis. 

  11. Rífið ostinn niður með rifjárni og stráið ofan á lasagnið í lokin ásamt smá oreganó.

  12. Ef tími gefst til látið þá lasagnað standa samsett í 30 mínútur áður en það er bakað (nema notaðar séu ferskar lasagnaplötur) . Bakið lasagnað í um 30 mínútur í ofni eða þar til osturinn er gylltur að lit.

  13. Látið lasagnað gjarnan standa á borði í um 5 til 10 mínútur eftir að það er komið úr ofninum, áður en það er borið fram. 

Til að auka trefjamagnið í réttinum má skipta helmingi af kjötinu út fyrir linsubaunir. Bætið þá við ½–1 dl af skoluðum linsubaunum (miðað við uppskrift fyrir tvo) út í kjötsósuna. Einnig má nýta afganga af grænmeti sem til eru í ísskápnum.

Berið lasagnað fram með fersku salati. Lasagna geymist vel í frysti í lokuðu íláti og hentar því vel að elda stærri skammt og eiga til að nota síðar.

Næringargildi
Fuldkornspartnerskabet

Innihald

2 skammtar
125 
g
Laukur
125 
g
Sellerí
125 
g
Gulrætur
12.5 
g
Olía (t.d. ólífuolía)
225 
g
Nautahakk (8-12% )
50 
g
Tómatpúrra
400 
g
Tómatar (úr dós)
dl
Vatn
rif
Hvítlaukur
g
Chillí (ferskt eða þurrkað þá minna)
stk
Lárviðarlauf
2.5 
g
Timían (ferskt eða þurrkað en þá minna magn)
g
Oreganó (ferskt eða þurrkað en þá minna magn)
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
250 
g
Kotasæla (má einnig nota bechamelsósu)
125 
g
Lasagnablöð (heilhveiti)
50 
g
Ostur (t.d. 17% Góðostur)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti