Lambalund

Lambalund með ristuðum jarðskokkum, balsamiksoði og hvítlaukssteiktum grænum belgbaunum er dásamlegur veisluréttur.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Sellerí og afurðir úr því,
Brennisteinsdíoxíð og súlfít,
Lambalund í hátíðarbúningi

Aðferð

https://www.hjart-lungfonden.se/halsa/recept/

    Jarðskokkar

  1. Hitið ofninn í 225°C. Setjið bökunarpappír á ofnplötu.

  2. Skrælið jarðskokka með kartöfluskrælara og skerið í þunnar sneiðar. Setjið sneiðarnar á ofnplötuna, dreifið smá olíu yfir. Kryddið með þriðjungi af saltinu og piparnum og stráið helmingnum af timíaninu yfir.

  3. Blandið vel saman með hreinum höndum svo olía og krydd þeki allar sneiðarnar. Bakið í ofni í um 20 mínútur, eða þar til jarðskokkarnir fá smá lit.

  4. Lambakjöt

  5. Takið utan af hvítlauk og saxið fínt eða pressið. Geymið til hliðar á disk. 

  6. Hitið olíu á pönnu við háan hita og brúnið lambalundirnar á öllum hliðum. Þegar flestar hliðar hafa brúnast, bætið þá helmingnum af hvítlauknum út á pönnuna ásamt timíangreinum og klárið að brúna kjötið.

  7. Lækkið hitann og steikið á hvorri hlið í um 1-2 mínútur eða þar til kjarnhiti er 55–58°C. Kryddið með öðrum þriðjungi af salti og pipar. Takið lambið af pönnunni og látið hvíla undir álpappír í 5-7 mínútur áður en þið skerið þær svo safinn haldist í kjötinu. Ekki þvo pönnuna hún er notuð í sósugerðina. 

  8. Balsamiksoð

  9. Setjið balsamikedik, nautakraft, það sem eftir er af timían, sykur og vatn í lítinn pott. Látið sjóða án loks þar til vökvinn er orðinn um 3/4 af upprunalega magninu.

  10. Hellið vatni á pönnuna sem þið notuðuð til að steikja kjötið og látið sjóða niður um helming. Sigtið safann og hellið honum í pottinn með edikinu og hrærið vel. Notið sósujafnara ef þarf til að þykkja soðið og hrærið þar til það verður fallega glansandi.

  11. Bætið truffluolíu út í rétt áður en soðið er borið fram með kjötinu.

  12. Belgbaunir

  13. Hitið olíu á pönnu við miðlungsháan hita.

  14. Steikið restina af hvítlauknum á pönnunni þar til hann verður glær og fær örlítinn brúnan lit.

  15. Bætið grænum baunum út á pönnuna og steikið í 1–2 mínútur. Kryddið með rest af salti og pipar.

Sneiðið lambið í þunnar sneiðar og berið það fram með ofnbökuðum jarðskokkum, balsamiksoði og hvítlaukssteiktum baunum. Einnig henta ýmis fersk salöt með réttinum, t.d. klettasalat eða spínat. 

Þið getið leikið ykkur með réttinn með því að nota rósmarín eða salvíu í stað timíans eða blanda jarðskokkum með öðrum rótargrænmetum eins og gulrótum, nípum eða kartöflum.

Næringargildi
User Image
Hjärt-Lungfonden

Innihald

2 skammtar
300 
g
Jarðskokkar (hægt að nota kartöflur eða annað rótargrænmeti)
1.5 
tsk
Olía
0.5 
tsk
Salt
0.5 
tsk
Pipar
3.5 
tsk
Timían (ferskt eða þurrkað)
300 
g
Lambalundir
rif
Hvítlaukur (eða eftir smekk)
25 
ml
Balsamikedik
0.5 
msk
Nautakjötskraftur (t.d. fljótandi kraftur úr flösku)
0.5 
msk
Sykur
dl
Vatn
0.5 
msk
Olía (t.d. trufflu eða önnur að eigin vali)
msk
Sósujafnari (t.d. dökkur)
75 
g
Belgbaunir (t.d. Haricots Verts - mega vera frosnar)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti