Lambakjötssúpa í klúbbinn

Seðjandi og góð súpa sem svíkur engan.

Lambakjötssúpa í klúbbinn

Aðferð

https://salteldhus.is/
  1. Afhýðið og saxið lauk og hvítlauk. Skolið og skerið papriku og gulrætur niður í fremur litla bita.

  2. Hitið olíuna í potti og steikið laukinn þar til hann er gullinn. Bætið hvítlauk, papriku og gulrótum út í og steikið aðeins áfram.

  3. Bætið paprikudufti út í og steikið í smá stund.

  4. Skerið lambakjötið niður í munnbitastærð. Bætið lambakjötsbitunum í pottinn og látið brúnast í smá stund.

  5. Bætið tómötum, vatni, lambakraftsteningi, salti og linsubaunum út í. Hleypið suðunni upp, lækkið síðan hitann og látið súpuna sjóða í 1 klukkutíma.

  6. Skolið og skerið kartöflur í teninga og bætið þeim út í þegar 15 mínútur eru eftir af suðutímanum.

  7. Skolið og saxið steinselju. Þegar súpan er tilbúin er steinseljunni sáldrað ofan á.

Ef þið eruð með lærissneiðar, frampart eða læri notið þá beinin líka með í súpuna. Látið þau þó út í síðast. 

Gott er að bera súpuna fram með grófu brauði.

Næringargildi
Sigríður Björk Bragadóttir

Innihald

2 skammtar
0.5 
stk
Laukur (stór, má vera meira)
rif
Hvítlaukur
0.5 
stk
Paprika
0.5 
stk
Gulrætur
0.5 
msk
Olía (t.d. ólífu- eða repjuolíu)
0.5 
msk
Paprikuduft
250 
g
Lambakjöt (gúllas, lærissneiðar, frampartur eða læri)
200 
g
Tómatar (saxaðir úr dós)
500 
ml
Vatn
0.5 
stk
Lambakraftur (teningur)
0.25 
tsk
Salt
40 
g
Linsubaunir (þurrar, t.d. grænar)
stk
Kartöflur
0.5 
dl
Steinselja (fersk, má sleppa)

1 g þurrar linsur eru um 2,6 g soðnar linsur.

Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti