Lambakjötssúpa frá Íran
Þetta er vel krydduð og kjarnmikil súpa sem sómir sér vel á borðum þegar veðrið er ekki upp á sitt besta.

Þetta er vel krydduð og kjarnmikil súpa sem sómir sér vel á borðum þegar veðrið er ekki upp á sitt besta.

Steikið broddkúmen- og kóríanderfræ á þurri pönnu í um 3 mínútur. Merjið þau svo létt í mortéli eða kryddkvörn til að ná fram ilmi og bragði. Ef notað er krydd í duftformi má sleppa þessu skrefi.
Afhýðið og saxið lauk og hvítlauk. Skolið og fræhreinsið chillipiparinn og saxið niður.
Beinhreinsið kjötið og skerið niður í munnbitastærðir.
Hitið olíu í potti og steikið laukinn þar til hann fer að verða glær. Bætið hvítlauk og chillí út í og steikið aðeins áfram.
Setjið lambakjöt út í og steikið með lauknum í góða stund til viðbótar.
Bætið allrahanda, chillídufti, ristuðu broddkúmeni og kóríander út í og steikið í 1–2 mínútur.
Setjið tómatpúrru, vatn, hunang og lambakraft út í og sjóðið súpuna í 30 mín.
Hellið vökvanum af kjúklingabaununum, skolið þær vel undir köldu vatni í sigti og bætið þeim síðan út í. Sjóðið áfram í 10 mínútur.
Sáldrið kúskús yfir, setjið lok á pottinn og látið súpuna standa í 5 mínútur.
Hrærið vel í súpunni og stráið gjarnan steinselju yfir áður en hún er borin fram.
Ef þið notið annað korn í stað kúskús látið það sjóða í súpunni þar til tilbúið eða bætið því soðnu saman við.