Kreólarækjur

kjotlaust
fiskur

Ferskur, fljótlegur og sumarlegur réttur.

Krabbadýr og afurðir úr þeim,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Kreólarækjur

Aðferð

  1. Takið utan af lauk og hvítlauk. Saxið smátt.

  2. Hitið olíu á pönnu og mýkið lauk og hvítlauk við miðlungsháan hita þar til hann verður mjúkur og glær eða í um 2-4 mínútur. 

  3. Skolið og fræhreinsið papriku og skerið í minni tenginga. Bætið teningunum út á pönnuna ásamt karrí og cayennepipar og hrærið létt saman með sleif eða góðu áhaldi. 

  4. Bætið vatni, rjómaosti og ananassafa út á pönnuna. Bragðbætið með salti og látið malla við miðlungsháan hita í 4-5 mínútur. 

  5. Takið utan af banana og skerið í skífur. Sigtið ananas eða hellið vökvanum frá. Skerið ananashringi í minni bita ef þeir eru notaðir.

  6. Lækkið hitann aðeins ef blandan fer að sjóða. Bætið ananasbitum, banönum og rækjum út í. Hrærið létt saman og eldið í 2–3 mínútur eða þar til rækjurnar eru heitar í gegn.

Kryddið til eftir smekk. Smá límónusafi getur aukið ferskleikann.

Berið rækjuréttinn fram með brúnum hrísgrjónum, kínóa eða bankabyggi og fersku salati. Skreytið með ferskum kryddjurtum og sítrónu- eða límónubátum sem hægt er að kreista yfir réttinn.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Af bestu lyst
Af bestu lyst

Innihald

2 skammtar
0.5 
stk
Laukur (lítill laukur)
0.5 
rif
Hvítlaukur
0.5 
msk
Olía (t.d. repju- eða ólífuolía)
stk
Paprika (lítil, má vera blanda af litum)
msk
Karrí (að eigin vali)
1.25 
tsk
Cayenne pipar (eða annar chillípipar)
dl
Vatn
msk
Rjómaostur
0.25 
dl
Ananassafi (má nota annan safa eða vatn)
0.5 
stk
Bananar (lítill)
stk
Ananas (ósætir hringir úr dós, eða ferskur)
100 
g
Rækjur
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti