Íslensk kjötsúpa

Þessi gamla góða sem öllum þykir svo góð.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Íslensk kjötsúpa

Aðferð

https://salteldhus.is/
  1. Hellið vatni í pott og látið það sjóða.

  2. Setjið kjötið út í og látið suðuna koma upp aftur. 

  3. Fleytið froðunni ofan af með skeið þegar hún myndast á yfirborðinu á meðan kjötið sýður.

  4. Takið hýðið utan af lauknum og skolið gulræturnar. Skerið svo lauk, gulrætur og hvítkál í bita.

  5. Bætið lauk, hvítkáli, gulrótum, súpujurtum, hrísgrjónum út í og sjóðið í 40 mínútur. 

  6. Skrælið gulrófurnar og skolið kartöflurnar. Skerið í bita og bætið út í súpuna. Látið malla í 20 mínútur.

  7. Smakkið til með súpukrafti og nýmöluðum pipar.

Þessi uppskrift er aðeins rammi því einfalt er að breyta innihaldinu eftir því hvað er til í ísskápnum. Blaðlaukur, sellerí, sellerírófa og steinseljurót gefa kjötsúpu gott bragð og eru tilvalin hráefni til að bæta við. Magnið af grænmeti má líka aðlaga, bætið við eða sleppið eftir smekk eða því hvað er til á heimilinu.

Næringargildi
Sigríður Björk Bragadóttir

Innihald

2 skammtar
0.5 
l
Vatn
300 
g
Lambakjöt (súpukjöt eða frampartssneiðar)
stk
Laukur (gulur)
stk
Gulrætur
70 
g
Hvítkál
msk
Súpujurtir
msk
Hrísgrjón (t.d. hýðishrísgrjón, bygg eða kínóa)
50 
g
Gulrófur
stk
Kartöflur
0.5 
stk
Kraftur (súpukraftur)
0.25 
tsk
Pipar (eða eftir smekk)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti