Hamborgari með sætkartöflufrönskum

Bragðgóður og mettandi hamborgari með fersku grænmeti og stökkum sætkartöflufrönskum. Fullkomin leið til að njóta klassískrar máltíðar sem er í hollari kantinum. 

Kornvörur sem innihalda glúten,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Sinnep og afurðir úr því,
Hamborgari með sætkartöflufrönskum

Aðferð

https://salteldhus.is/

    Sætkartöflufrönskur

  1. Hitið ofn í 210°C.

  2. Afhýðið sæta kartöflu og skerið í mjóa strimla. Veltið þeim upp úr maísenamjöli í skál eða setjið allt í plastpoka og hristið vel.

  3. Dreifið kartöflustrimlunum jafnt á ofnskúffu klædda bökunarpappír. Dreypið yfir helmingnum af olíunni og kryddið með smá salti.

  4. Bakið kartöflustrimlana í ofni. Snúið þeim eftir 20 mínútur og bakið áfram í 15 mínútur eða þar til þeir eru mjúkir að innan og stökkir að utan.

  5. Hamborgarar

  6. Setjið hakkið í skál, saltið, piprið og kryddið með hamborgarakryddi eftir smekk. Blandið vel saman með höndum eða gaffli. Mótið hakkið fyrst í kúlu, svo í flatt buff og þjappið vel saman.

  7. Skolið salat, papriku og tómata. Sneiðið papriku og tómata niður. Afhýðið lauk og skerið í þykkar hringlaga laukhringi. 

  8. Hitið olíu á pönnu og steikið hamborgarana og laukhringina saman eða sitt í hvoru lagi. Steikið þar til kjötið eru eldaðir í gegn og laukhringirnir vel brúnaðir.

  9. Hamborgarasósa

  10. Takið utan af hvítlauk og saxið hann smátt. Setjið í skál ásamt sýrðum rjóma, paprikudufti, sinnepi, tómatsósu, pipar og örlitlu salti. Blandið vel saman.

  11. Samsetning

  12. Steikið eða hitið brauðbollurnar í gegn á pönnunni, í ofni eða brauðrist.

  13. Setjið neðri hluta brauðbollunnar á disk. Raðið salati, papriku og tómatsneiðum ofan á. Leggið hamborgarann yfir, bætið laukhringjum við og hellið sósu yfir. Lokið með efri hluta bollunnar og berið fram með sætkartöflufrönskum.

Hikið ekki við að bæta meira grænmeti á borgarann. Prófið að nota t.d. ferska eða súrsaða gúrku, avókadó eða annað grænmeti sem til er í ísskápnum.

Næringargildi
Sigríður Björk Bragadóttir

Innihald

2 skammtar
stk
Sætar kartöflur
0.5 
msk
Maísmjöl (eða kartöflumjöl)
msk
Olía (notið bæði til steikingar og á kartöflur)
0.5 
tsk
Salt
200 
g
Nautahakk
0.25 
tsk
Pipar
40 
g
Salatblanda
0.5 
stk
Paprika
stk
Tómatar (t.d. bufftómatar)
stk
Laukur (gulur eða rauður)
rif
Hvítlaukur
dl
Sýrður rjómi (10-18%)
0.5 
tsk
Paprikuduft
0.5 
tsk
Sinnep
tsk
Tómatsósa
stk
Hamborgarabrauð (gróft t.d. Lífskorn)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti