Grillað grænmeti og kjöt með oreganóolíu
Grillað grænmeti fær að njóta sín í þessum einfalda og bragðgóða rétti þar sem kjötið spilar aukahlutverk.
Grillað grænmeti fær að njóta sín í þessum einfalda og bragðgóða rétti þar sem kjötið spilar aukahlutverk.
Hitið grillið.
Skolið papriku, kúrbít og eggaldin. Fjarlægið fræin úr paprikunni og skerið í báta. Skerið kúrbít og eggaldin í um ½ cm þykkar sneiðar eftir endilöngu.
Penslið grænmetið með smá olíu. Grillið þar til það mýkist og fær fallegar grillrákir. Kryddið með smá salti og pipar.
Penslið kjötið með smá olíu og kryddið með uppáhalds kryddum. Grillið kjötið þar til það er eldað að ykkar smekk.
Þegar kjötið er eldað setjið það á bretti og látið það hvíla í um 5 mínútur. Skerið kjötið síðan í þunnar sneiðar.
Skolið sítrónu og þerrið. Rífið börkinn fínt niður með rifjárni af helmingi sítrónunnar og setjið í skál. Kreistið safann úr sítrónunni og setjið í skálina með berkinum.
Skolið oreganó, ef þið notið ferskt, og þerrið. Saxið fínt og bætið í skálina ásamt afganginum af ólífuolíunni. Hrærið vel saman.
Berið grænmetið og kjötið fram með oreganóolíunni.
Gott er að bjóða upp á soðnar eða ofnbakaðar kartöflur og gróft brauð með réttinum. Hægt er að nota annað grænmeti sem hentar til grillunar t.d. rauðlauk, aspas eða sveppi. Oreganóolíuna má einnig nota með fiski eða sem dressing yfir salat.
Olían geymist vel í lokuðu íláti í ísskáp í 2–3 daga.