Fylltar pönnukökur

graenmetis
kjotlaust

Skemmtileg útgáfa af fylltum pönnukökum sem auðvelt er að leika sér með eftir smekk.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Egg og afurðir úr þeim,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Fylltar pönnukökur

Aðferð

    Pönnukökur

  1. Setjið hveiti og mjólk í skál og hrærið saman með písk eða í hrærivél þar til deigið er slétt og kekkjalaust. Bætið eggjum og helmingnum af saltinu út í og hrærið áfram. Bætið olíu saman við í lokin og hrærið vel.

  2. Hitið pönnu yfir miðlungsháum hita (t.d. stilling 6–7 af 9). Ef pannan er ekki húðuð, setjið örlítið af olíu á hana.

  3. Steikið pönnukökurnar í 1–2 mínútur á hvorri hlið, eða þar til þær verða gullinbrúnar. Uppskriftin gefur um fjórar pönnukökur miðað við tvo skammta.

  4. Fylling

  5. Skerið spínatið smátt. Ef það er ferskt, skolið það fyrst og þerrið. Ef það er frosið, þíðið það aðeins eða hitið létt og kreistið síðan vökvann vel úr.

  6. Takið utan af hvítlauk og saxið smátt. Blandið spínati, skyri, rjómaosti og hvítlauk saman í skál. Kryddið með pipar og múskati eftir smekk og hrærið þar til allt hefur blandast vel.

  7. Samsetning

  8. Hitið ofninn í 200°C (blástur: 180°C). 

  9. Smyrjið eldfast mót með olíu, helst með eldhúsrúllubréfi. Dreifið hökkuðum tómötum yfir botninn og kryddið með afganginum af saltinu og smá pipar.

  10. Fyllið hverja pönnuköku með spínatblöndunni, rúllið þeim upp og raðið í mótið ofan á tómatana.

  11. Bakið pönnukökurnar í 15 mínútur í ofni eða þar til þær eru heitar í gegn.

  12. Takið mótið úr ofninum. Rífið parmesanost niður með rifjárni. Toppið hverja pönnuköku með 1 teskeið af sýrðum rjóma og smá rifnum osti, annaðhvort strax eftir að þær koma úr ofninum eða rétt áður en þær eru bornar fram.

Það er auðvelt að leika sér með fyllinguna svo ekki hika við það. Ein hugmynd er að bæta sveppum eða blaðlauk til að fá meiri fyllingu og aðra áferð. Fyrir aukinn próteingjafa má bæta við söxuðum kjúkling eða baunum.

Gott er að bera réttinn fram með fersku salati og brúnum hrísgrjónum.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Af bestu lyst
Af bestu lyst

Innihald

2 skammtar
37.5 
g
Hveiti (nota t.d. helming heilhveiti)
dl
Léttmjólk
stk
Egg
0.5 
tsk
Salt
msk
Olía
250 
g
Spínat (ferskt eða frosið)
rif
Hvítlaukur
75 
g
Skyr (hreint, má jafnvel nota jógúrt)
25 
g
Rjómaostur (hreinn)
0.25 
tsk
Pipar
0.25 
tsk
Múskat
200 
g
Tómatar (hakkaðir úr dós eða passata)
tsk
Parmesan
msk
Sýrður rjómi (10%)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti