Frönsk og frábær

Franska lauksúpan á sér langa sögu. Uppruni hennar er sennilega frá tímum Rómverja. Frakkar þróuðu síðan uppskriftina og bættu brauði og glóðuðum osti ofan á og varð súpan vinsæll matur þar í landi.

Kornvörur sem innihalda glúten,
Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Brennisteinsdíoxíð og súlfít,
Frönsk og frábær lauksúpa

Aðferð

https://salteldhus.is/
  1. Afhýðið laukinn og skerið hann í tvennt og svo hvern helming í tvo hluta. Sneiðið laukinn niður. 

  2. Takið utan af hvítlauk og saxið smátt.

  3. Setjið olíu í pott og hitið. Steikið lauk og hvítlauk við vægan hita í um 15 mínútur eða þar til laukurinn er glær og/eða aðeins farinn að brúnast.

  4. Piprið vel í pottinn og látið piparinn steikjast aðeins með.

  5. Bætið timían næst út í pottinn.

  6. Stráið heilhveitinu yfir laukinn og hrærið honum saman við með sleif. Hellið nautasoði og mysu út í súpuna, fyrst smávegis í einu og síðan öllu til að hveitið fari ekki í kekki.

  7. Sjóðið súpuna í 30 mínútur við meðalhita, smakkið til með pipar og sjávarsalti.

Súrdeigsbrauð eða heilkornabrauð og kröftugur ostur ofan á (t.d. Ísbúi) gerir þessa súpu vel hæfa í matarboðið. Hitið þá ofninn á 200°C eða stillið á grill. Setjið bökunarpappír á ofnplötu. Skerið brauðið niður í stóra teninga. Setjið teningana, í passlegum skömmtum á mann á pappírinn, stráið rifnum osti yfir teningana. Bakið eða grillið brauðið þar til það er gullið og girnileg. 

Hellið súpunni í skálar og setjið grillað ostabrauð í hverja súpuskál ef þið hafið útbúið það. Berið fram strax.

Næringargildi
Sigríður Björk Bragadóttir

Innihald

2 skammtar
250 
g
Laukur
rif
Hvítlaukur
msk
Olía (t.d. ólífuolía)
0.5 
tsk
Pipar (eða eftir smekk)
0.25 
tsk
Timían (ef ferskt timían má nota meira)
0.5 
msk
Heilhveiti (eða fínt hveiti)
370 
ml
Nautasoð (má nota grænmetissoð)
25 
ml
Mysa (eða óáfengt hvítvín eða vatn)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti