Fiski tacos með hjúpaðri bleikju
Næringarrík og ljúffeng fiskmáltíð, full af joði, B12- og D-vítamíni, ásamt omega-3 fitusýrum.

Næringarrík og ljúffeng fiskmáltíð, full af joði, B12- og D-vítamíni, ásamt omega-3 fitusýrum.

Takið utan af ananas og skerið hann í litla teninga. Skolið og saxið rauðan chili og kóríander. Takið hýðið af rauðlauk og saxið smátt.
Rúllið límónu og sítrónu á borði með lófanum og skerið svo í tvennt. Kreistið safann úr með höndunum eða safapressu og fjarlægið fræ.
Blandið ananas, chillí, kóríander og rauðlauk saman í skál ásamt límónu-og sítrónusafa, saltið og piprið eftir smekk. Geymið í ísskáp á meðan fiskurinn og annað meðlæti er útbúið.
Skolið og skerið rauðkál í þunnar ræmur. Leggið til hliðar.
Rífið þurrt gróft brauð niður í matvinnsluvél eða blandara þar til það verður að fínum mulningi. Ef brauðið er ekki alveg þurrt er gott að rista það létt í ofni áður.
Setjið brauðrasp, broddkúmen og paprikuduft í djúpan disk og blandið vel saman.
Brjótið egg í annan djúpan disk og hrærið létt með gaffli.
Ef fiskurinn er með roði flettið því af. Skerið fiskinn svo í litla bita sem henta í taco. Þerrið bitana létt með eldhúspappír.
Dýfið einum bita í einu fyrst í eggjablönduna þannig að hann þekjist vel og síðan í brauðraspinn þar til bitinn er hulinn. Gott að nota gaffal eða fingurnar. Leggið tilbúna bitana til hliðar á bretti meðan unnið er með restina.
Hitið olíu á pönnu og steikið nokkra bita í senn við meðalhita í um 1-2 mínútur á hlið (fer eftir þykkt bitanna) eða þar til þeir eru steiktir í gegn.
Hitið pönnu og steikið maísvefjurnar á báðum hliðum við meðalhita þar til þær verða gullinbrúnar eða í um 15 - 30 sekúndur á hvorri hlið.