Ferskt kjúklingasalat
Ferskjur gefa þessu kjúklingasalati sem er smekkfullt af grænmeti ferskan blæ. Græna kryddsósan lyftir salatinu svo á annað stig.
Mynd: Kirsi-Marja Savola

Ferskjur gefa þessu kjúklingasalati sem er smekkfullt af grænmeti ferskan blæ. Græna kryddsósan lyftir salatinu svo á annað stig.
Mynd: Kirsi-Marja Savola

Hitið ofninn í 200°C.
Skerið kjúklingabringurnar í tvær flatar steikur og reynið að hafa þær jafnþykkar svo þær eldist jafnt.
Blandið saman í skál smá olíu (ef uppskriftin er fyrir 2, þá ca. 1 msk) og kryddblöndu að eigin vali. Veltið kjúklingabitunum upp úr kryddolíunni. Saltið og piprið jafnvel örlítið.
Setjið kjúklinginn í eldfast mót eða á bökunarpappír á ofnskúffu. Bakið í um 10 mínútur eða þar til kjötið er eldað í gegn. Skerið síðan í munnbitastærð.
Skolið steinselju og basilíku, saxið smátt og setjið í skál.
Bætið afgangnum af olíunni, ediki, hunangi, salti og pipar út í skálina með steinseljunni og basilíkunni og hrærið saman. Ef þið viljið fá sósuna silkimjúka, notið töfrasprota til að mauka hana.
Skolið salatið og spínatið og rífið það niður með höndunum og setjið í stóra salatskál.
Skolið ferskjurnar, skerið í tvennt, fjarlægið steina og skerið í sneiðar.
Flysjið gúrku og skerið í bita. Skolið radísur og skerið í þunnar sneiðar með hníf eða mandólí - eða skerið í fíngerða báta. Skolið kirsuberjatómata og skerið í tvennt. Ef stærri tómatar eru notaðir, skerið í fína teninga eða fíngerða báta.
Hellið svolítið af sósunni yfir salatlaufin í skálinni og blandið. Dreifið ferskjubitum, gúrku, radísum og tómötum yfir salatblöðin.
Setjið kjúklingabitana ofan á salatið ásamt afgangnum af sósunni.
Prófið að krydda kjúklinginn með papriku, hvítlauk eða sítrónupipar. Ef ferskjur eru ekki til má nota mangó, hindber, jarðarber, perur eða stökkt epli. Gaman er að leika sér með salatið, t.d. bæta við avókadó eða grilluðum paprikum eða því grænmeti sem til er í kæliskápnum. Einnig má rista graskers- eða sólblómafræ og dreifa yfir salatið. Ef ekki er til hvítvínsedik er hægt að nota önnur edik í staðinn eða sítrónusafa.