Einfaldi kjúklingarétturinn
Einfaldur og bragðgóður ofnréttur þar sem kjúklingur, kartöflur og laukur eldast saman í safaríkri blöndu. Sítróna og krydd bæta frískleika og dýpt – tilvalið fyrir ljúfa og fljótlega máltíð.

Einfaldur og bragðgóður ofnréttur þar sem kjúklingur, kartöflur og laukur eldast saman í safaríkri blöndu. Sítróna og krydd bæta frískleika og dýpt – tilvalið fyrir ljúfa og fljótlega máltíð.

Hitið ofninn í 200°C eða 180°C með blæstri.
Skolið og skerið sætar kartöflur í sneiðar. Setjið bökunarpappír á ofnskúffu og raðið kartöflunum þar á.
Skolið sítrónuna og skerið í skífur. Afhýðið laukinn og skerið einnig í skífur. Raðið sítrónu- og laukskífunum yfir kartöflurnar.
Takið utan af hvítlauk, saxið smátt og blandið saman við olíun í skál.
Raðið kjúklingabitunum ofan á grænmetið. Penslið létt með hvítlauksolíunni. Kryddið með uppáhalds kryddblöndunni, smá salti og pipar. Bakið við 200°C í 30–40 mínútur, eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður og kartöflurnar fallega gylltar.
Auðvelt er að skipta kartöflunum út fyrir ferskt fennel eða venjulegar bökunarkartöflur, eftir því sem hentar. Gott er að bera réttinn fram með fersku salati fyrir létta og ljúfa máltíð.