Púffað kínóa er kínóa sem hefur verið hitað þannig að fræin þenjast út og verða létt og stökk. Áferðin minnir á morgunkorn úr púffuðum hrísgrjónum. Púffað kínóa fæst til að mynda í mörgum matvöruverslunum. Í staðinn má þó nota Rice Krispies, sykurminna granóla eða grófmulið hrísgrjóna poppkex.
Ef dökkt súkkulaði er ekki við höndina má sleppa því eða setja kókosolíu, kakó og hlynsíróp eða hunang í pott og búa til súkkulaðiblöndu þannig.
Prófa má að bæta ristuðum höfrum, granóla, söxuðum hnetum, goji-berjum eða þurristuðum kókosflögum í döðlugrunninn. Einnig getur veri gott að strá kókosflögum, kakónibbum eða söxuðum hnetum yfir súkkulaðið áður en það stífnar.
*Hægt er að sleppa og nota vatn eða kókosolíu í staðinn fyrir hnetusmjörið ef t.d. hnetuofnæmi er til staðar.
Hægt er að gera vegan-útgáfu með mjólkurlausu súkkulaði.
Geymið döðlugottið í lokuðu íláti í kæli eða í frysti, það geymist þannig í allt að fjórar vikur.