Chilli con carne

Ekta chili frá Texas - bragðmikill kjötréttur með kryddum, nýrnabaunum og tómötum. Hentar vel fyrir fjölskyldumáltíðir og kvöldstundir með vinum – og verður enn betri upphitaður daginn eftir.

Sellerí og afurðir úr því,
Chilli con carne

Aðferð

  1. Takið utan af lauknum og saxið smátt. Skerið nautakjöt í bita. Notið sitthvort skurðbrettið fyrir kjöt og lauk og þrífið hnífinn með sápu og heitu vatni á milli.

  2. Hitið olíu í potti. Mýkið laukinn og bætið nautakjötinu út í og brúnið.

  3. Hellið kjötkrafti, tómatpúrru, tómötum, negulnöglum, lárviðarlaufum, chili og oreganó út í pottinn. Sjóðið við meðalháan hita í 30–40 mínútur eða þar til kjötið er meyrt.

  4. Hellið vökvanum af baununum í sigti og skolið með köldu vatni. Bætið baununum út í pottinn. Látið malla í 2–3 mínútur en passið að suðan komi ekki upp.

  5. Kryddið í lokin með salti og pipar eftir smekk.

Hægt er að nota nautahakk í stað nautakjötsbitana. Einnig er hægt að prófa sig áfram með baunir og setja svartar baunir, kjúklingabaunir eða rauðar linsubaunir. Gerið réttinn næringarríkari og bragðmeiri með því að bæta við grænmeti eins og papriku, sveppum eða sætri kartöflu. Kryddið gjarnan til með reyktu paprikudufti, broddkúmeni eða hnífsoddi af kanil, kakódufti eða chili-flögum.

Berið réttinn fram með smá hreinni jógúrt og kolvetnum eins og  brúnum hrísgrjónum, byggi eða grófu brauði.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Af bestu lyst
Af bestu lyst

Innihald

2 skammtar
50 
g
Laukur (skalottulaukur eða blaðlaukur)
150 
g
Nautakjöt (t.d. gúllas - einnig hægt að nota nautahakk)
0.5 
msk
Olía (t.d. ólífu- eða repjuolía)
2.5 
dl
Nautakjötskraftur (soð)
36 
g
Tómatpúrra
200 
g
Tómatar (hakkaðir úr dós eða passata)
stk
Negulnaglar (má nota duft)
stk
Lárviðarlauf
0.5 
msk
Chillíduft (eða flögur eða ferskt)
0.5 
tsk
Oreganó
150 
g
Nýrnabaunir (úr dós)
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti