Caprese salat

graenmetis
kjotlaust

Ferskt og gott salat sem hentar vel bæði hversdags og á hátíðarborð.

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Caprese salat

Aðferð

  1. Skolið tómata og basilíku og þerrið vel. 

  2. Skerið tómata í 5–8 mm sneiðar. Ef notaðir eru kirsuberjatómatar má skera þá í helminga.

  3. Hellið leginum af mozzarella­perlum. Ef notuð er stór mozzarella­kúla má sneiða hana í jafnar sneiðar á stærð við tómatana.

  4. Finnið til stóran disk og raðið tómötunum og mozzarella til skiptis á diskinn. Gott er að hafa 2 tómata á móti 1 mozzarella svo útlit og bragð verði í jafnvægi.

  5. Dreifið ferskri basilíku jafnt yfir salatið. Heil basilíkublöð koma fallega út en einnig má saxa blöðin gróft.

  6. Dreypið ólífuolíu jafnt yfir og kryddið að lokum með flögusalti, nýmöluðum pipar og herbs de provenve kryddblöndu.

Ef þurrkuð basilíka er notuð má dreifa henni yfir í lokin með saltinu og piparinum. Til að gera salatið enn hátíðlegra má dreypa örlitlu balsamíkediki yfir rétt fyrir framreiðslu eða jafnvel nokkrum ristuðum furuhnetum til að fá meiri fyllingu og smá crunch.

Næringargildi
User Image

Höfundur

Gott og einfalt
Gott og einfalt

Innihald

2 skammtar
200 
g
Tómatar (venjulegir eða kirsuberja)
g
Basilíka (fersk - má nota þurrkaða)
125 
g
Mozzarella (t.d. perlur eða stór kúla)
tsk
Olía (t.d ólífuolía)
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
0.25 
tsk
Kryddblanda (valkvætt - t.d. herbs de provence)
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti