Blómkálssúpa

Ótrúlega einföld og góð blómkálssúpa sem hentar vel fyrir alla fjölskylduna.

Mjólk og mjólkurafurðir (þ.m.t. laktósi),
Blómkálssúpa

Aðferð

https://salteldhus.is/
  1. Afhýðið og saxið lauk og hvítlauk. 

  2. Setjið olíu í rúmgóðan pott og hitið. Steikið lauk og hvítlauk við vægan hita þar til laukurinn fer að verða glær.

  3. Bætið broddkúmeni og kóríander út í pottinn og steikið áfram í 1-2 mínútur. 

  4. Skerið blómkál í grófa bita. Skolið bitana undir köldu vatni ef notað er ferskt blómkál.

  5. Setjið blómkál og kjúklingasoð út í og sjóðið súpuna við meðalhita í 10-12 mínútur.

  6. Maukið súpuna annaðhvort með töfrasprota eða í matvinnsluvél.

  7. Bætið mjólk út í og smakkið til með salti og pipar og hitið að suðu.

Ef grænkál er fáanlegt er gott að ofnbaka það og setja út í súpuna. Skolið það fyrst og rífið svo niður í stóra bita, penslið svo með olíu og t.d. hvítlauksdufti eða næringarger og bakið á ofnplötu í 200°C heitum ofni í 5 mínútur. Þannig verður grænkálið stökkt og gott að mylja það þannig út á súpuna. 

Gott er að bera súpuna fram með grófu brauði. 

Næringargildi
Sigríður Björk Bragadóttir

Innihald

2 skammtar
0.5 
stk
Laukur
rif
Hvítlaukur
400 
g
Blómkál (frosið eða ferskt)
msk
Olía (t.d. ólífu- eða repjuolía)
0.5 
tsk
Broddkúmen (duft, öðru nafni cumin)
0.5 
tsk
Kóríanderduft
0.5 
l
Kjúklingasoð (má nota grænmetissoð)
0.75 
dl
Mjólk (t.d. jurta- eða léttmjólk)
0.25 
tsk
Salt
0.25 
tsk
Pipar
Bæta á innkaupalista
Bæta á vikumatseðil
Prenta uppskrift
Afrita slóð

Slóð hefur verið afrituð

Senda í tölvupósti