Baunabuff með sætum kartöflum og salati
Þessi uppskriftr krefst smá undirbúnings en sá tími er vel þess virði.

Þessi uppskriftr krefst smá undirbúnings en sá tími er vel þess virði.

Skolið kjúklingabaunirnar vel og þerrið.
Setjið hörfræ og vatn í skál og hrærið saman. Látið standa í um 10 mínútur eða þar til blandan þykknar og verður hlaupkennd.
Takið utan af lauknum og saxið gróft. Afhýðið sætu kartöflurna og rífið gróft með rifjárni. Skolið steinseljuna og saxið smátt.
Setjið helming kjúklingabaunanna í matvinnsluvél ásamt lauk, hörfræblöndu, broddkúmeni, smá salti og pipar. Maukið þar til blandan verður slétt og rjómakennd. Einnig má nota töfrasprota eða stappara.
Setjið blönduna í skál og bætið við restinni af kjúklingabaununum, rifinni sætri kartöflu, heilhveiti og steinselju. Blandið vel saman og látið standa í um 30 mínútur. Ef blandan er of blaut og loðir ekki vel saman bætið þá smávegis af hveiti við.
Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.
Mótið tvö buff á mann og leggið á ofnplötu klædda bökunarpappír. Bakið buffin í ofni í um 30 mínútur eða þar til þau verða gullin að lit og elduð í gegn.
Fjarlægið stilkinn og ytri blöð kálsins. Skerið síðan kálið í fínar ræmur og setjið í skál. Stráið smá salti og sykri yfir og nuddið blönduna varlega saman.
Skolið epli og skerið í þunnar ræmur og blandið saman við kálið.
Setjið jógúrt í skál. Takið utan af hvítlauknum og pressið hann eða saxið smátt. Bætið hvítlauknum saman við jógúrtina ásamt örlitlu salti og pipar og blandið vel saman.
Kryddað kjúklingabaunabuff passar einstaklega vel með bökuðum sætum kartöflum og fersku salati. Buffin eru líka frábær í pítubrauð eða sem heilsusamlegur valkostur á hamborgarabrauð í stað kjöts.